Kvöldmatur

Fyllt lambalæri & dýrindis piparsósa

April 12, 2022
lambalæri

– Unnið í samstarfi við Toro –

Þetta var svo dásamleg máltíð, fullkomin fyrir páskana. Að þessu sinni keypti ég hálfúrbeinað lambalæri og kláraði að úrbeina það. En mér finnst úrbeinuð læri svo þægileg í veislu, ekkert bein að skera í kringum og eldunin svo jöfn og góð svo er líka hægt að fylla það með allskyns gúmmelaði sem fullkomnar þetta.

Oft er hægt að fá úrbeinuð læri í matvörubúðum svo er líka hægt að svindla og gera fyllinguna, skella henni í eldfast mót og elda í ofninum með heilu læri.

lambalæri
lambalæri
lambalæri

Fyllt lambalæri

1 úrbeinað læri
3-4 msk Bezt á lambið krydd

1 blaðlaukur
2-3 sveppir
5 hvítlauksrif
1 salatfetakubbur
10 ferskar döðlur
2 msk olía
salt og pipar
Handfylli timjan (2 tsk þurrkað)
2 msk Bezt á lambið krydd

Stillið ofn á 180°c.

Leggið úrbeinaða lærið á bretti og skerið í kjötið til að fletja kjötið eins vel út og hægt er.

Blandið þá blaðlauk, sveppum og hvítlauk saman í matvinnsluvél og setjið síðan í skál. Myljið ostinn saman við, bætið olíunni saman við. Skerið döðlurnar niður og blandið öllu saman. Kryddið þá með salt og pipar, timjan og Bezt á lambið kryddinu.

Byrjið á því að krydda kjötið með Bezt á lambið, takið þá fyllinguna og leggið á lambið og dreifið vel yfir. Rúllið þá kjötinu upp og bindið þétt með bandi sem þolir eldun, kryddið svo kjötið vel að utan með Bezt á lambið. Setjið í eldfast mót og inn í ofn í 30 mín.

Eftir 30 mín setjið lok eða álpappír yfir kjötið, hægt er að halda áfram að elda kjötið á 180°c í 1-2 klst í viðbót eða lækka hitann niður í 150°c og leyfa því að hægeldast í 3-4 klst.

Piparostasósa

100 ml rjómi
300 ml vatn
½ piparostur
1 pk Toro piparsósa

Setjið rjóma og 100 ml af vatni í pott ásamt piparosti, gott er að skera ostinn niður til að hann sé fljótari að bráðna. Þegar osturinn er bráðnaður, hristið þá saman 200 ml vatn og 1 pk Toro piparsósu í krukku t.d. og hellið út í pottinn. Leyfið sósunni að malla í örfáar mín. Flóknara er það ekki!


Ég mæli með að ofnbaka kartöflur, lauk og hvítlauk og útbúa ferskt salat og bera fram með lambinu og sósunni.

Njótið!

– Ertu að fylgjast með á Instagram Döðlur & smjör ? –


You Might Also Like