Eldað
Grillaður ostakubbur með grísku ívafi
Samstarf með Gott í matinn

Ég fór á grískan veitingarstað nú á dögunum á Spáni og pantaði mér svipaðan rétt í forrétt og ég var svo heilluð hvað þetta var gott að ég ákvað að endurtaka leikinn heima og deila því með ykkur. Að sjálfsögðu þurfti ég samt að breyta vel til, því þannig er ég bara en hugmyndin sú sama. Þessi grillaði ostur er frábær sem forréttur borinn fram með brauði, kexi eða snakki en líka með grillmatnum t.d. sem fylling í bakaðar kartöflur.
Tími
20 mín
Hráefni
Grillaður ostakubbur
Aðferð — Grillaður ostakubbur
Byrjið á því að kveikja á grillinu hjá ykkur en einnig er hægt að elda ostinn í ofni. Takið fram álpappír, ca 30 cm á lengd og setjið salat ostinn fyrir miðju. Skerið þá grænmetið smátt niður og blandið saman í skál, setjið grænmetið ofan á ostinn. Dreifið olíunni yfir ostinn og grænmetið, sáldrið oregano yfir og toppið með salt og pipar. Brjótið þá álpappírinn saman, ég tek hann saman í miðjunni og brýt hann niður nokkrum sinnum og tek síðan hliðarnar inn. Setjið á grillið og leyfið að eldast í 15-20 mín. Osturinn ætti þá að vera orðinn vel bræddur. Berið strax fram með pita brauðið, kexi, eða snakki. Hafið ostinn í álpappírnum til að halda hita á honum en hann er snöggur að forma sig aftur. Njótið!
Gefðu uppskriftinni einkunn


