Döðlur & smjör
Kvöldmatur

Kúrbíts salat með furuhnetum & fetaost

Kúrbíts salat með furuhnetum & fetaost
Þetta salat kom mér svo skemmtilega á óvart, átti alveg von á því að það yrði gott en það fór alveg fram úr mínum vonum – Mér finnst það æðislegt! Það er svo létt og öðruvísi og þegar búið er að grilla kúrbítinn er maður svo stutta stund að skella því saman. Frábært með grillmat eða bara þegar maður er í stuði fyrir annars konar salat.

Skammtar

4

Tími

20 mín

Hráefni

Skammtar:4

Kúrbíts salat

Aðferð — Kúrbíts salat

Kveikið á grillinu. Byrjið á því að skera kúrbítinn í sneiðar, leggið á bretti og berið olíu á sneiðarnar og kryddið með salt og pipar. Snúið sneiðunum við og gerið sama á hina hliðina. Setjið kúrbítinn á grill og grillið í 5 mín, snúið þá kúrbítnum og grillið í 5 mín á hinni hliðinni. Takið þá kúrbítinn af grillinu og leggið á bretti og leyfið að kólna lítillega. Opnið dós af maís og hellið vökvanum frá og ristið furuhneturnar á pönnu og skolið klettasalatið. Þá er bara að setja salatið saman en því er bara raðað saman eftirfarandi: Dreifið handfylli af klettasalati á diskinn, leggið þá kúrbít yfir og sáldrið baunum og furuhnetum yfir. Endurtakið þangað til að hráefnin eru öll komin á disk, endið þá á því að dreifa vel af salat osti yfir og gott er að setja svolítið að olíunni með yfir. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir