Döðlur & smjör
Morgunmatur

Litlar granóla skálar með grísku jógúrti

Samstarf með Gott í matinn

Litlar granóla skálar með grísku jógúrti
– Unnið í samstarfi við Gott í matinn – Þessar sniðugu og fallegu granólaskálar eru fullkomnar fyrir helgarmorgunmatinn og brönsinn en þær eru allt í senn fallegar, hollar og dásamlega góðar. Sniðugt er að útbúa skálarnar með smá fyrirvara og þá er bara skella smá grískri jógúrt ofan í, skreyta og bera fram.

Skammtar

12

Tími

25 mín

Ofnhiti

150°C

Hráefni

Skammtar:12

Aðferð

Stillið ofn á 150°c. Setjið öll þurru hráefnin saman í skál, bræðið kókosolíuna og blandið saman við ásamt hlynsírópinu og ekki gleyma smá salti. Takið muffins form, ég nota sílikon form sem rúmar 12 kökur. Setjið 1½- 2 msk í hvert form og þrýstið niður og meðfram hliðum svo það myndast skál. Bakið í ofni í 15 mín og leyfið að kólna. Hrærið aðeins í grísku jógúrtinni og setjið eina vel stóra msk ofan í hverja skál. Drisslið smá hnetusmjöri yfir og skerið bláber til að skreyta. Geymið í kæli. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir