Döðlur & smjör
Eftirréttir

Ris a la noisettes

Samstarf með Toro

Ris a la noisettes
– Unnið í samstarfi við Toro – Bjó ég mér mögulega til franskt heiti á rétt, mögulega! Þýðum þetta aftur yfir á íslensku en þá erum við að vinna með hrísgrjóna og rjómaeftirréttinn fræga en að þessu sinni með heslihnetum í staðinn fyrir möndlur og toppum þetta með dulce de leche karamellu og eplum. Hvernig er þetta að hljóma? Í rúmlega tuttugu ár höfum við fjölskyldan hisst í hádeginu á aðfangadag skipst á gjöfum og borðað Risalamande saman – Ein af mínum uppáhalds stundum í kringu jólin. Svo ákvað að taka þennan klassíska rétt og leika mér aðeins með og útkoman er ótrúlega ljúfeng.

Skammtar

7

Hráefni

Skammtar:7

Grjónagrautur

Rjómablanda

Samsetning

Aðferð — Grjónagrautur

Eldið grautinn samkvæmt leiðbeiningum og kælið vel.

Aðferð — Rjómablanda

Létt þeytið rjómann í stórri skál, blandið saman við hann vanillu, sykri og hökkuðum heslihnetum. Hellið þá köldum grjónagrautnum saman við rjómann og hrærið vel. Berið fram annað hvort í stórri skál eða setjið í skálar og skreytið með dulce de leche, heslihnetum og soðnum eplum.

Aðferð — Samsetning

Sjóðið niðursoðna mjólk yfir í dulce de leche eða kaupið hana tilbúna. Skerið eplin niður í mjög smáa bita og sjóðið í 2-3 mín, rétt til að fá mýkt í eplin. Berið réttinn fram annað hvort í stórri skál og þá karamelluna og eplin í sér skál eða setjið í skálar og skreytið með dulce de leche, heslihnetum og soðnum eplum. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir