Döðlur & smjör
Smákökur

Súkkulaði og pekanhnetu smákökur

Samstarf með Royal

Súkkulaði og pekanhnetu smákökur
Það er alltaf gleðilegt þegar maður er með einhverja hugmynd í maganum og hún heppnast svona einstaklega vel! Þessar kökur eru dæmi um slíkt, stökkar að utan, fullar að súkkulaði og hnetum og eins og mjúka brúnka (brownie) í miðjunni, guðdómlegar. Pekanhneturnar gefa kökunum svo dásamlegt "kröns". Þær bókstaflega hurfu úr boxinu!

Skammtar

22

Tími

40 mín

Ofnhiti

180°C

Hráefni

Skammtar:22

Karamelíseðar pekanhneturnar

Smákökudeigið

Aðferð — Karamelíseðar pekanhneturnar

Setjið 20 g af sykri ásamt pekanhnetunum á pönnu stillta á miðlungshita. Leyfið sykrinum að bráðna og húða hneturnar, tekur um 5 mín. Leyfið þeim að kólna þangað til þær eru saxaðar og settar í deigið.

Aðferð — Smákökudeigið

Setjið í hrærivél smjör, sykur og púðursykur og þeytið í 2-3 mín. Bætið þá egginu saman við og þeytið vel saman. Þá er vanilludropum, hveiti, súkkulaðibúðing og matarsóda bætt saman við og öllu hrært saman (hér getur verið gott að setja viskastykki yfir vélina svo þurrefnin fari ekki út um allt fyrst þegar allt blandast saman). Saxið súkkulaðið og pekanhneturnar niður og hafið bitana frekar í stærri kantinum. Blandið saman við deigið og þeytið saman. Mér finnst gott að vigta kökurnar þegar ég hef þær í stærri kantinum svo þær séu sem jafnastar í bakstri. Svo hér eru þær 45-50 g hver kaka. En ef þið hafið þær minni er gott að miða við matskeið. Mótið allar kúlurnar og setjið í kæli í 10 mín. Stillið ofn á 180°c og raðið kökunum á bökunarpappírsklædda ofnplötu og bakið í 12-15 mín, styttra ef þær eru litlar. Varist að baka þær of lengi svo þær haldi mýktinni inn við miðju. Geymast vel við stofuhita. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir