Kvöldmatur

Einfaldasta tómatsúpan

November 1, 2021
tómatsúpa

– Unnið í samstarfi við Toro –

Það er eitthvað við haustið sem kallar á súpur, farið að kólna og manni langar í eitthvað sem hlýjar manni.

En þó að súpur sem hafa fengið að malla tímanum saman séu dásamlegar, þá er svo frábært að geta gripið í eitthvað sem tekur styttri tíma og nánast enga fyrirhöfn. Frábær eftir göngutúrinn, upp í bústað eða bara í kvöldmat þegar tíminn og orkan er ekki mikil.

Rjóminn og pestóið gefur þessari klassísku súpu svo gott auka kikk, mild en einstaklega bragðgóð.

Svo er það bara að bera súpuna fram með góðu brauði eða fullkomna tvennuna af tómatsúpu og grillaðri samloku, getur ekki klikkað!


Tómatsúpa

800 ml vatn
100 ml rjómi
1 pk tómatssúpa frá Toro
1-2 msk grænt pestó

Setjið í pott vatn, rjóma og innihald tómatsúpu pakkans. Hrærið að suðu og bætið pestó saman við súpuna, fyrst eina matskeið og smakkið til ef þið viljið meira bragð. Leyfið súpunni að malla í 3-4 mín og berið síðan fram.

Brauðteningar

Hérna er tilvalið að nota brauð sem er farið að verða gamalt, því það kemur ekkert niður á teningunum sjálfum.

2-3 brauðsneiðar
2 msk ólífuolía
salt, eftir smekk
timjan
hvítlaukskrydd

Hitið ofn í 180°c. Skerið brauðið niður í cm teninga og setjið í skál og blandið saman ólífuolíu og kryddunum eftir smekk, veltið með skeið þannig að kryddin og olían dreifist vel. Setjið á bökunarpappír á ofnskúffu og inn í ofn í 15-20 mín. Gott er að hreyfa við þeim 1-2 á meðan þeir bakast.

Ég mæli með að bera súpuna fram með brauðteningum, graslauk og til að gera extra vel við sig þá smá sýrðan rjóma ofan á.

Njótið!

– Fylgstu með á Instagram Döðlur & smjör –

You Might Also Like