Döðlur & smjör
Eldað

Bakaður brie með jarðaberjum

Bakaður brie með jarðaberjum
Það hefur lengi verið á listanum að eignast litla pottjárnspönnun til að gera uppskriftir nákvæmlega eins og þessa, þær eru alveg fullkomnar til að baka brie ost fyrir partýið, saumaklúbbinn eða bara kósý kvöld. Það sem ég sé líka fyrir mér að það sé fullkomið að gera tveggja manna eðlu í pönnunni. En að ostinum að þessu sinni para ég hann saman með bökuðum jarðaberjum sem bökuð eru með hunangi, ediki, myntu og pipar. Hljómar kannski smá furðuleg blanda en alveg dásamleg á bragðið og passar svo vel með ostinum. Heima hjá mér völdu flestir að borða ostinn með litlum súrdeigs sneiðum, þar sem brauðið gat tekið í sig mesta sírópið með ostinum, alveg himneskt! Hvet ykkur til að prófa.

Tími

25 mín

Ofnhiti

175°C

Hráefni

Bakaður brie

Aðferð — Bakaður brie

Stillið ofn á 175 °. Skerið jarðaberin í tvennt og setjið í elfast mót, blandið hunangi, balsamik ediki, pipar og saxaðri myntu saman í skál og dreifið yfir jarðaberin. Bakið berin í 10 mín. Setjið ostinn á pottjárnspönnuna og inn í 15 mín – Setjið jarðaberin ofan á ostinn og hellið sírópinu yfir. Berið fram með súrdeigsbrauði, kexi, berjum og því sem hugurinn girnist. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir