Döðlur & smjör
Deigbakstur

Djúsí kanilsnúðar

Samstarf með Gott í matinn

Djúsí kanilsnúðar
– Samstarf Gott í matinn – Hvað er betra en djúsí kanilsnúðar með kaffibollanum eða kaldri mjólk, það er fátt held ég! Mér finnst það ótrúlega notalegt á köldum degi sérstaklega um helgar þegar maður gefur sér tímann í að nostra við það að baka, leyfa deiginu að hefast og uppskera síðan dýrindis kaffitíma.

Tími

120 mín

Ofnhiti

180°C

Hráefni

Deigið

Fylling

Krem

Aðferð — Deigið

Hitið mjólk í örbylgjuofni eða í potti þangað til hún er volg, bætið þá gerinu saman við og leyfið því að gerjast í 2-3 mín. Setjið þá þurrefnin saman í hrærivélarskál og blandið eggjum og mjólkinni varlega saman við. Hrærið varlega saman, bætið þá smjörinu smátt og smátt saman við. Hrærið vel saman á hægum hraða en gott að leyfa því að hrærast saman í 5-10 mín. Leyfið deiginu að hefa sig í klst eða þangað að til að það hefur u.þ.b. tvöfaldast í stærð.

Aðferð — Fylling

Setjið allt saman í skál og bræðið örstutt í örbylgjuofni og hrærið vel saman, leyfið að hvíla við stofuhita meðan deigið er að hefast. Stillið ofn á 180°c. Fletjið deigið út u.þ.b. 60×40 cm og dreifið fyllingunni jafn yfir. Rúllið deigið upp og skerið í u.þ.b. 2 cm breiða snúða. Raðið þeim í eldfast mót og leyfið þeim að hefast aftur í 30 mín með viskastykki yfir. Bakið snúðana í 25-30 mín eða þangað til þeir eru farnir að taka á sig smá lit.

Aðferð — Krem

Blandið öllu saman í hrærivélarskál og þeytið í 3-5 mín. Leyfið snúðunum að kólna lítillega og dreifið síðan kreminu yfir, bestir enn volgir en svo sannarlega góðir líka kaldir. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir