Döðlur & smjör
Eldað

Fersk salsa dýfa

Samstarf með Gott í matinn

Fersk salsa dýfa
– Unnið í samstarfi við Gott í matinn – Íslendingar eru sólgnir í allskyns dýfur með snakkinu sínu það hefur sýnt sig með eðlu æðinu sem hefur lifað núna í mörg ár. Hér kemur aftur á móti dýfa sem er algjör andstæða eðlunnar. Hún er fersk, holl og ótrúlega bragðgóð. Hægt er að skella í hana á mettíma og bera fram við alls kyns tilefni. En mér finnst hún einmitt tilvalin í Hrekkjavökupartý, þar sem allt er morandi í nammi og gefur hún ákveðið jafnvægi á móti því.

Hráefni

Aðferð

Smyrjið ¾ af sýrða rjómanum í lítið eldfast mót eða á disk, dreifið síðan salsa sósunni yfir sýrða rjómann. Skerið þá grænmetið örsmátt niður eða rífið það niður í matvinnsluvél sem tekur ykkur örskamma stund. Blandið öllu grænmetinu saman í skál og hellið mesta vökvanum frá. Bætið saman chili og kóríander ef þess er óskað. Dreifið þá úr skálinni yfir salsa sósuna. Stráið cheddar ost hringinn í kringum dýfuna og skerið kokteil tómata til að skreyta. Til þess að útbúa köngulóarvefinn ofan á dýfuna, takið restina af sýrða rjómanum og setjið í sprautupoka með hringlaga stút á. Byrjið á því að gera mynstur líkt og þið væruð að skera pizzu í 8 parta og síðan er tengt á milli í tveimur umferðum með hálfhrings hreyfingu. Skerið eina ólífu í tvennt, notið annan partinn sem kropp og skerið hinn í 6 sneiðar og notið sem lappir á köngulóna. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir