Kvöldmatur
Grænmetis lasagna
Samstarf með Gott í matinn

– Unnið í samstarfi við Gott í matinn – Janúar er svo tilvalinn tími til að núllstilla matarræðið aðeins eftir jólatíðina og bæta nóg af grænmeti og ávöxtum inn í matarræðið. Þetta grænmetis lasagna hef ég gert bæði með því að sneiða grænmetið stórt en mér persónulega finnst best að gera það mjög smátt svo það verði meira svona lasagna fílingur í því og finnst auðveldara að bjóða börnunum upp á það en það rennur ljúft ofan í alla aldurshópa á mínu heimili þó að þessi átta ára myndi kjósa "venjulegt" lasagna alla daga en hann er ekki mikill grænmetismaður.
Skammtar
5
Tími
60 mín
Ofnhiti
180°C
Hráefni
Skammtar:5
Grænmetissósa
Kotasælu blanda
Samsetning og bakstur
Aðferð — Grænmetissósa
Skerið niður blaðlauk og setjið út á pönnu ásamt olíu, pressið hvítlaukinn og bætið saman við. Skerið grænmetið niður eftir ykkar hentisemi en ég sker það smátt og set jafnvel í matvinnsluvél. Bætið grænmetinu á pönnuna, steikið við meðal háan hita, í 5-7 mín, bætið þá niðursoðnum tómötum, tómatpúrru, tening og vatni saman við og kryddið. Leyfið að malla í u.þ.b. 10 mín.
Aðferð — Kotasælu blanda
Blandið saman í skál kotasælu, sýrðum rjóma, spínati, parmesan og salt og pipar og hrærið vel saman.
Aðferð — Samsetning og bakstur
Stillið ofn á 180°c. Takið þá eldfast mót og byrjið að raða lögunum, fyrst grænmetis blandan, síðan lasagna plata og kotasælu blandan ofan á og endurtakið. Endið með því að setja vel af osti yfir. Setjið inn í ofn og bakið í u.þ.b. 30 mín. Njótið!
Gefðu uppskriftinni einkunn


