Smákökur
Hafra tvistur

Þessar eru æði, ég er vissulega mjög veik fyrir góðum hafrakökum. Ég hef lengi vel bakað uppskriftina hennar Helenu sem margir kannast við og heitir Hafrakossar , alveg dásamlegar kökur. En að þessu sinni langaði mig að prófa eitthvað aðeins -öðruvísi en með svipuðum stíl svo það varð til að ég gerði þessar. Þær eru töluvert léttari en kossarnir og alveg einstaklega einfaldir í bígerð – Alveg fullkominn bakstur fyrir yngri bakara. Þessar koma sterkt inn fyrir jólabaksturinn eða bara á köldum haustdegi þegar manni langar í smá sætt með kaffinu sínu.
Skammtar
28
Tími
30 mín
Ofnhiti
200°C
Hráefni
Skammtar:28
Hafrakökur
Smjörkrem
Samsetning
Aðferð — Hafrakökur
Stillið ofn á 200°c. Bræðið smjör og blandið öllum þurrefnunum, vanilludropum og eggjum saman við smjörið og hrærið vel saman. Það er allt og sumt! Takið tvær teskeiðar og setjið deig í aðra þeirra og notið hina til að ýta deiginu úr, setjið á bökunarpappírs klædda ofnplötu og bakið í 8-10 mín eða þangað til þær eru orðnar gullin brúnar. Leyfið kökunum að kólna.
Aðferð — Smjörkrem
Þeytið öll innihaldsefnin saman í hrærivél þangað til kremið er orðið létt og ljóst. Gott er að setja hálfa teskeið af kanill til að byrja með og smakka til eftir smekk.
Aðferð — Samsetning
Parið kökurnar saman eftir stærð og lögun. Setjið þá smjörkremið í sprautupoka með stút að eigin vali, hér nota ég Ateco 869 , sem gefur fallegt munstur á milli. En einnig er hægt að smyrja kreminu á með hníf – bragðast svo sannarlega eins. Lokið síðan kökunum og geymið kökunar í lokuðu boxi. Njótið!
Gefðu uppskriftinni einkunn


