Döðlur & smjör
Eftirréttir

Ísblóms terta

Ísblóms terta
Sonur minn fékk þessa frábæru hugmynd að ég myndi gera risa ísblóm sem afmæliskökuna sína eftir að hafa setið og borðað ísblóm í eftirrétt í matarboði. Ég varð auðvitað að verða við því og útkoman var ótrúlega skemmtileg og virkilega einföld.

Skammtar

8

Tími

15 mín

Hráefni

Skammtar:8

Aðferð

Bræðið rjómasúkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Setjið súkkulaðið í sílikonform og leyfið því að velta um til þess að búa til skelina. Þegar súkkulaðinu hefur verið dreyft á allar hliðarnar er umfram súkkulaði helt í skálina aftur. Setjið í kæli þangað til að súkkulaðið hefur harðnað. Takið þá ísinn úr frysti og blandið Daim saman við, setjið helminginn í formið. Dreyfið þá sultunni yfir ísinn og setjið restina af ísnum í formið og sléttið úr. Setjið plaspoka eða álfilmu yfir ísinn og inn í frysti. Takið út rétt áður en ísblómið er borið fram hvolfið á disk og takið sílikonformið varlega af. Best er að nota hníf til að skera ísblómið og gott er að gefa því gott högg í skelina til að fá sem skörpustu sneiðarnar.

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir