Döðlur & smjör
Bakstur

Kirsuberja bollakökur

Samstarf með Gerum daginn girnilegan

Gefðu einkunn

Kirsuberja bollakökur
Það er alveg magnað hvað manni langar meira að baka svona ferskt og létt þegar dagarnir fara að lengja, ég er ekki að segja að ég er alltaf til í að baka súkkulaðiköku það klikkar aldrei. En ég laðast meira af bakstri með ávöxtum t.d. Að þessu sinni ákvað ég að fara í kirsuberin og nota uppáhalds kirsuberjajógúrtið mitt frá Pascual í kökurnar. Í kökunum er einnig heil kirsuber en ég kaupi þau frosin og á alltaf til, til að nota m.a. í smoothie. Þar sem aðgengi að ferskum kirsuberjum er ekki alltaf í boði á skerinu okkar. Einnig er hægt að leika sér með uppskriftina og setja hana í skúffu og gera kirsuberja skúffuköku með dásamlegu súkkulaðikremi.

Skammtar

12

Tími

30 mín

Ofnhiti

175°C

Hráefni

Skammtar:12

Kirsuberja bollakökur

Smjörkrem

Aðferð — Kirsuberja bollakökur

Stillið ofn á 175°c. Þeytið saman smjör og sykur í 1-2 mín. Blandið þá eggjunum saman við einu í einu. Vigtið hveitið í skál ásamt lyftiduft og salti. Hellið saman við deigið. Bætið út í vanilludropum og jógúrti. Hrærið öllu vel saman. Raðið formum á bökunarplötu og setjið væna matskeið af deigi í hvert form, passið þó að formið sé í mesta lagi tveir þriðju fullt. Setjið eitt kirsuber í hverja köku fyrir miðju og þrýstið því niður. Setjið inn í ofn og bakið í 20 mín. Leyfið að kólna.

Aðferð — Smjörkrem

Þeytið smjör í 1-2 mín, bætið svo flórsykrinum varlega saman við, gott er að bæta rjóma saman við til skiptis við flórsykurinn. Bætið síðan kakó og vanilludropum saman við og þeytið vel saman, helst í nokkrar mín. Setjið kremið í sprautupoka og sprautið í mynstri á kökurnar og skreytið að vild. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir