Kvöldmatur
Mín uppáhalds blaðlaukssúpa
Samstarf með Gott í matinn

Þessi súpa hefur verið forréttur á Gamlárskvöld í fjölskyldunni minni frá því ég man eftir mér svo hún hefur alveg sérstaka meiningu fyrir mér. En eftir að ég fór sjálf að búa og fékk uppskriftina hjá mömmu, þá finnst mér ótrúlega ljúft að skella í hana endrum og sinnum en mér finnst hún svo góð! Hér erum við ekkert að flækja hlutina en laukurinn verður sætur í súpunni að hann verður alveg dásamlegur á bragðið. Dásamlegt að súpa eins og þessi eigi fastan sess í matarhjartanu manns þar sem hún er svo sannarlega hentug fyrir budduna.
Skammtar
5
Tími
25 mín
Hráefni
Skammtar:5
Aðferð
Skerið blaðlauk og lauk smátt niður og látið krauma í smjöri í u.þ.b. 5 mín á lágum hita. Bætið þá hveiti saman við og hrærið vel. Blandið krafti saman við ásamt vatni. Sjóðið í 5-10 mín. Blandið soya sósunni og salti saman við ásamt rjóma og hitið að suðu. Til að fá súpuna extra djúsí er gott að setja eggjarauður saman við súpuna í lokin – En eftir að rauðunum er blandað út í má súpan ekki sjóða. Mæli með að þið prófið það. Berið fram með góðu brauði og smjöri. Njótið!
Gefðu uppskriftinni einkunn


