Döðlur & smjör
Bakstur

Snúðar með marsípan og kardimommum

Snúðar með marsípan og kardimommum
Í janúar 2011 fór ég sem skiptinemi til Svíþjóðar nánar tiltekið til Lund. Það var æðislegur tími og eitt af því sem ég kynntist þar var fika , sænska orðið yfir kaffitíma. Við vorum alltaf að gera vel við okkur og fara í fika á einhverju góðu kaffihúsi eða bakarí og þar kynntist ég Semlor , sænska útgáfunni af bolludagsbollum. Þær eru svo mikið uppáhald hjá mér og það hættulega gerðist í gær að ég sá að IKEA selur Semlor í kaffihúsinu sínu! Ég mun gera mér ferð þangað til að eiga huggulegt fika í IKEA. En að tengingu við þessa snúða! Já, þetta eru semsagt snúðar sem líkja dálítið eftir bragðinu í semla bollunum- Marsípan og kardimommur. Bollurnar eru semsagt bollur með áberandi kardimommubragði, möndumassi settur í bolluna, rjómi yfir lokið á og sáldrað yfir með flórsykri. Ég fæ sko vatn í munninn bara við tilhugsunina. Ég var í alvörunni að skoða flugmiða til Svíþjóðar um daginn á þessum árstíma til að geta örugglega hitt á þann tíma sem bollurnar væru til sölu, læt mig hafa að fara í IKEA eða gera sjálf í bili held ég samt. En snúðarnir eru dásamlegir og fylltu örlítið upp í þessa löngun mína í Semlor. Mæli allaveganna heilshugar með að þið prófið þá.

Tími

115 mín

Ofnhiti

200°C

Hráefni

Snúðar

Fylling

Samsetning

    Aðferð — Snúðar

    Færið mjólkina í pott og hitið þangað til hún er ylvolg, setjið í hrærivélina og gerið saman við. Hrærið saman með krók og leyfið að hvíla í stutta stund. Takið saman hin hráefnin á meðan. Blandið eggjum, smjöri og sykri saman við og hrærið á lágum hraða. Mælið hveiti, kardimommur og salt saman og blandið út í hrærivélina smá í einu, þangað til allt hveitið er komið saman við. Leyfið vélinni að vinna í 2-3 mín. Leyfið deiginu að hvíla í klukkustund undir volgu viskastykki.

    Aðferð — Fylling

    Setjið öll hráefnin saman í skál og best er að vinna þau saman með hendinni, þangað til þau hafa blandast vel saman.

    Aðferð — Samsetning

    Rúllið deigið út í ferning u.þ.b. 60×40 cm eða hálfan cm að breidd. Dreifið fyllingunni yfir deigið, gott er að gera þetta með sleikju eða spaða. Leggið deigið saman til helminga á styttri hliðina og rúllið yfir nokkrum sinnum með kökukefli til að þinna deigið aðeins og blanda fyllingunni aðeins saman við deigið sjálft. Skerið deigið í ræmur u.þ.b. 2 cm á breidd. Takið hverja ræmu og snúið uppá hana, haldið svo í annan endann og snúið deiginu upp hring í kringum fingurna sem halda í endann. Passið að seinni endinn fari undir snúðinn. Einnig er hægt að rúlla deiginu upp og skera í snúða setja á plötu eða eldfast mót þétt saman. Leyfið snúðunum að hefast í 30 mín. Hitið ofn á 200°c. Eftir að snúðarnir hafa hefast brjótið egg í skál og penslið yfir snúðana. Fallegt er að setja perlusykur yfir snúðana en ekki nauðsynlegt. Bakið snúðana í 20-25 mín eða þangað til þeir eru orðnir fallega brúnir.

    Gefðu uppskriftinni einkunn

    Fleiri uppskriftir