Döðlur & smjör
Kökur

Sítrónu og bláberja formkaka

Samstarf með Gott í matinn

Sítrónu og bláberja formkaka
Það er eitthvað við hækkandi sól þá langar manni að fara að baka meira úr ferskum ávöxtum, svona léttari bakstur. Það leynast nokkrar sítrónu kökur og eftirréttir hér á síðunni og ég held hreinlega að þeir séu allir settir inn á þessum árstíma á milli ára. En þessi dýrindis sítrónu og bláberja formkaka var virkilega góð. Mjúk, sæt og sítrónusúr glassúr ofan á, fullkomin með kaffibollanum út í sólinni á pallinum, allaveganna í huganum mínum!

Tími

70 mín

Ofnhiti

180°C

Hráefni

Sítrónu og bláberja formkaka

Glassúr

Aðferð — Sítrónu og bláberja formkaka

Stillið ofn á 180°c. Setjið sykur í hrærivélarskál og rífið sítrónubörkinn saman við. Nuddið honum létt saman við sykurinn með fingrum. Bræðið þá smjör og blandið saman við sykurinn, hrærið í 3-5 mín saman þangað til að blandan er orðin ljós. Bætið þá eggjunum saman við einu í einu og hrærið vel. Bætið þá salt, lyftidufti og hveiti saman við og hrærið. Þá er grísku jógúrtinni, vanilludropum og sítrónusafa bætt við og hrært saman. Setjið bláberin í skál með smá hveiti og blandið saman með skeið þangað til að berin eru hjúpuð hveiti og bætið þeim saman við deigið og hrærið þeim saman með sleikju. bökunarpappír í formkökuform og hellið deiginu í formið. Sléttið úr að því að ofan og setjið inn í ofn og bakið í 55-60 mín. Gott er að stinga prjón eða hníf í kökuna og þegar prjóninn kemur hreinn út er kakan klár.

Aðferð — Glassúr

Blandið saman flórsykri og sítrónusafa og hellið yfir kökuna þegar hún hefur kólnað lítillega. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir