Eldað
Sveppasósa á fimm mínútum
Samstarf með Toro

– Unnið í samstarfi við Toro– Það er ekkert nýtt að þegar ég ætla að útbúa sósu með matnum mínum þá gríp í alltaf í eitt stk pakkasósu og færi hana yfir á næsta plan. Einar og sér eru þær góðar en þegar maður setur örlitla auka ást í pottinn verður hún yfirleitt geggjuð og allir halda að hún sé búin að fá að malla í pottinum tímunum saman. Að þessu sinni er það sveppasósa, sem er sú sósa sem ég sæki oftast í að gera svona með hversdagsmat eða um helgar. Hún passar með svo mörgu og öllum finnst hún svo góð á mínu heimili. Hvort sem þið trúið því eða ekki þá er hún einnig ótrúlega góð köld, tilvalið að preppa sósu og taka með t.d í útileguna fyrir grillkjötið eða bara á hamborgarana.
Skammtar
4
Tími
10 mín
Hráefni
Skammtar:4
Aðferð
Skerið sveppina smátt niður og setjið í pott ásamt smjöri. Leyfið sveppunum að steikjast á miðlungshita í 2-3 mín. Bætið hinum hráefnunum saman við og hrærið vel. Hækkið hitann og leyfið sósunni að ná suðu og sjóða í stutta stund (lækka auðvitað undir þegar hún fer að sjóða, svo hún sjóði ekki uppúr). Smakkið sósuna til hvort þarf að bæta auka salt og pipar og berið fram. Njótið!
Gefðu uppskriftinni einkunn


