Kvöldmatur
Pasta með sveppum & kjúkling
Samstarf með Gerum daginn girnilegan

– Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan – Hvað haldið þið að við höfum hér? Fyrsta mataruppskriftin sem ég deili með ykkur á D&S, en ótrúlegt en satt þá var aldrei meiningin að fókusa eingöngu á sætmeti það bara gerðist óvart í upphafi. Svo vonandi læðast mataruppskriftirnar hingað inn hægt og rólega. En þá er um að gera að byrja á því að deila með ykkur mínu uppáhalds pasta uppskrift. Hún er einföld og bragðgóð, svona pasta réttur sem öllum finnst góður burt séð frá aldri. Ég hvet ykkur til að prófa.
Skammtar
4
Tími
30 mín
Hráefni
Skammtar:4
Tagilatelline með sveppum & kjúkling
Aðferð — Tagilatelline með sveppum & kjúkling
Skerið kjúklinginn í smáa bita og steikið á pönnu. Eldið kjúklinginn í 3-4 mín og setjið til hliðar. Skerið niður sveppi og hvítlauk og steikið á pönnu ásamt olíu. Steikið þangað til að sveppirnir eru orðnir brúnaðir, bætið þá útí nautakrafti, rjóma og vatni. Kryddunum er síðan einnig bætt saman við og saltað og piprað eftir smekk. Lækkið undir pönnunni og leyfið að malla á pönnunni meðan pastað er soðið. Setjið vatn í pott og leyfið suðunni að koma upp. Setjið tagliatelle pastað út í vatnið og sjóðið í u.þ.b. 10 mín eða þangað til að það hefur náð réttri áferð. Skolið vatnið að mestu frá pastanu með því að hella því í gegnum sigti. Bætið pastanu saman við meðlætið á pönnunni og veltið saman við sósuna. Gott er að bera fram með Parmesan osti, ferskri steinselju og hvítlauksbrauði. Njótið!
Gefðu uppskriftinni einkunn


