Smákökur

Súkkulaðibitakökur með perlum & hvítu súkkulaði

November 11, 2021
súkkulaðibitakökur

– Unnið í samstarfi við Royal–

Smákökur eru svo skemmtilegar að því leyti til að það er endalaust hægt að leika sér með þær. Nota ólíkt súkkulaði, bæta í þær kakó eða hnetum – möguleikarnir eru endalausir. Að þessu sinni nota ég einnig Royal búðingsduft í kökurnar en það gerir þær alveg einstaklega ljúffengar en búðingsduft er oft svona leynihráefni í mörgum uppskriftum smáköku og hefðbundnum kökum.

Það er einnig hægt að leika sér með það og prufa súkkulaðibúðing eða jafnvel karamellu í þessari uppskrift.

En búðingsduftið gerir það að verkum að ekki þarf að láta deigið hvíla inn í ísskáp eins og er oftast gert með smákökudeig, þó það komi að sjálfsögðu ekki að sök. En kökurnar verða fallegar í laginu og halda sér vel strax eftir deigbaksturinn.


Súkkulaðibitakökur – 20 stk –

230 g smjör, við stofuhita
50 g sykur
150 g púðursykur
2 egg
1 tsk vanilludropar
250 g hveiti
1 tsk matarsódi
1 pk vanillubúðingur frá Royal
100 g súkkulaðiperlur
100 g hvítt súkkulaði

Hitið ofn í 180°c. Hrærið saman smjör, sykur og púðursykur í 2-3 mín, gott að skafa meðfram hliðunum 1-2 svo smjörið festi sig ekki við hliðarnar. Bætið þá eggjunum saman við einu í einu og hrærið þangað til létt og ljóst.

Bætið þá vanilludropum, hveiti, matarsóda og búðingsduftinu saman við og hrærið varlega saman. Skerið súkkulaðið niður í bita, ekki of smátt. Hellið þá súkkulaðinu saman við deigið og hrærið því saman við með sleikju.

Takið bökunarpappírs klædda plötu og skiptið deiginu niður með matskeiðum. Ég vigta mínar kökur og er hver kaka u.þb. 50 grömm. Gott er að taka nokkrar súkkulaðiperlur og setja ofan á hverja kúlu, gerir útlitið á þeim aðeins skemmtilegra.

Bakið kökurnar í 10-12 mín. Ég vill mínar kökur mjúkar í miðjunni og er að baka þær í 10 mín meðan aðrir á mínu heimili vilja þær aðeins meira bakaðar þá hef ég þær inni í 12 mín.

Njótið!

– Fylgstu með á Instagram @dodlurogsmjor –

You Might Also Like