Kökur

Súkkulaðikaka með banana tvisti

October 12, 2021
súkkulaðikaka með bananatvisti

– Unnið í samstarfi við Royal–

Hér er á ferðinni dýrindis súkkulaðikaka með bananatvisti. Í grunninn er þetta skúffuköku uppskriftin sem ég nota alltaf helminguð og gefið skemtilegt tvist. En ástæðan fyrir að ég segi ykkur það að það er því mjög auðvelt að tvöfalda uppskriftina og setja í eldfast mót ef baka á fyrir fleiri.

Eftir að hafa tekið smá búðinga ævintýri hér á heimilinu í allskyns tilraunastarfsemi smakkaði ég þennan nýja búðing með bananasplitti og hvítu súkkulaði og ég er ekki frá því að hann er mitt nýja uppáhald og hann er það hér hjá öllum. Svo get svo sannarlega mælt með honum og aldrei að vita að ég prófi mig enn frekar áfram með hann í einhverri skemmtilegri útfærslu.


Súkkulaðikakan

75 g sykur
75 g púðursykur
1 egg
85 g smjör, brætt
150 g hveiti
1 tsk lyftiduft
20 g kakó
125 ml ab mjólk / súrmjólk
50 ml sjóðandi vatn

Stillið ofn á 200°c. Þeytið sykur og egg saman þangað til létt og ljóst. Bræðið þá smjör og bætið saman við ásamt þurrefnum. Setjið vélina rólega af stað og hellið út í ab mjólk og síðast sjóðandi vatni. Hrærið þar til allt er vel blandað saman. Gott að renna með sleikju yfir botninn og losa ef það er eitthvað sem hefur sest þar.

Takið 20 cm form og spreyið að innan með Pam spreyi, hellið deiginu í formið og setjið inn í ofn. Bakið í u.þ.b. 20 mín. Takið kökuna út og leyfið henni að kólna vel.

Ofan á

200 ml mjólk
½ pk Royal búðingur – Bananasplitt með hvítu súkkulaði
1 banani
300 ml rjómi

Blandið saman mjólk og búðing og þeytið vel saman. Takið þá kælda kökuna og potið í hana með endanum af sleif út um allt svo það myndast holurnar í kökuna. Hellið búðingnum í holurnar og kælið kökuna í dálitla stund.

Skerið banana í sneiðar og þeytið rjómann. Raðið banananum yfir kökuna og dreifið rjómanum yfir með sleikju eða setjið hann í sprautupoka með stút og dúbbið á kökuna (Ég nota Ateco 869 hér) – Skreytið að vild.

Njótið!

– Fylgstu með á Instagram @dodlurogsmjor –

You Might Also Like