Döðlur & smjör
Kökur

Bananabrauð

Bananabrauð
Þessa uppskrift af bananabrauði geri ég svo oft að hún er bara geymd í hausnum, kannski líka vegna þess að hún er svo einföld og klikkar aldrei. Brauðið er alltaf jafn gott nýbakað með smjöri og osti. Mér fannst það allaveganna ákveðin viðurkenning á hversu gott það væri þegar amma sjálf bað um uppskrift af því eftir að ég kom til hennar með eitt ylvolgt.

Tími

90 mín

Ofnhiti

170°C

Hráefni

Aðferð

Stillið ofn á 170°c Hrærið egg og púðursykri vel saman, þeytið í 3-4 mínútur. Stappið banana á bretti og bætið út í. Þeytið vel í nokkrar mínútur. Þurrefnin mæld og sigtuð saman við og hrært saman, byrja varlega og síðan á fullum hraða. Bræðið smjörið og blandið saman við í lokin. Smyrjið kökuform með smjöri að innan Hellið í form og inn í ofn Bakið í 40-50 mín, leyfið brauðinu að kólna í forminu í 5 mín, takið úr forminu og leyfið að kólna enn frekar í u.þ.b. 30 mín. Einnig er gott að setja deigið í muffins form og baka sem slíkar.

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir