Döðlur & smjör
Bakstur

Bláberja muffins

Bláberja muffins
Nú hvað á hverju fer hver að verða seinastur til að næla sér í íslensk bláber út í móa. Frostið fer að fara að skella á og á einni nóttu er tækifærið búið. Það voru týnd slatti af berjum á þessum bæ en þau fengu að fara í muffins og svo í frystinn, þá er alltaf hægt að taka frostin ber og búa til eitthvað gúmmelaði úr þeim allt árið um kring. Ég nýt þess eiginlega frekar heldur en að eiga fulla skápa af sultu. Skella þeim í boost og kökur er eitthvað sem hljómar betur og svo sníki ég bara eina og eina krukku hjá ömmu í staðinn. En áður en að berin voru sett í frysti ákvaðum við krakkarnir að skella í eina uppskrift og hér er afraksturinn af því.

Skammtar

20

Tími

30 mín

Ofnhiti

215°C

Hráefni

Skammtar:20

Kröns

Muffins

Aðferð — Kröns

Vigtið öll hráefnin og setjið saman í skál. Blandið saman með höndunum og geymið inn i kæli meðan muffins deigið er útbúið.

Aðferð — Muffins

Stillið ofn á 215°c. Blandið þurrefninum saman í skál. Vigtið smjörið og setjið í pott, bræðið smjörið á miðlungshita. Blandið mjólk og eggi saman við smjörið. Setjið bláberin saman við þurrefnin og hrærið örlítið saman við. Hellið þá smjöri, mjólk og egginu saman við í nokkrum atrennum út í þurrefnin og hrærið varlega saman með sleikju. Finnið til muffins form og setjið á ofnskúffu. Ef þið gerið stórar muffins dugar deigið í 12 stk en í venjuleg muffins form 20 stk (eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan). Fyllið formin upp að tveimur þriðju af formunum. Náið í krönsið inn í ísskáp og setjið u.þ.b. matskeið af því ofan á hverja köku. Færið plötuna inn í ofn fyrir miðju og bakið í 12-15 mín eða þangað til að prjónn kemur hreinn út. Lengja þarf tímann ef að notuð eru stærri form. Leyfið þeim að kólna lítilega og njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir