Kvöldmatur
Fyllt lambalæri & dýrindis piparsósa
Samstarf með Toro

Þetta var svo dásamleg máltíð, fullkomin fyrir páskana. Að þessu sinni keypti ég hálfúrbeinað lambalæri og kláraði að úrbeina það. En mér finnst úrbeinuð læri svo þægileg í veislu, ekkert bein að skera í kringum og eldunin svo jöfn og góð svo er líka hægt að fylla það með allskyns gúmmelaði sem fullkomnar þetta. Oft er hægt að fá úrbeinuð læri í matvörubúðum svo er líka hægt að svindla og gera fyllinguna, skella henni í eldfast mót og elda í ofninum með heilu læri.
Ofnhiti
180°C
Hráefni
Fyllt lambalæri
Piparostasósa
Aðferð — Fyllt lambalæri
Stillið ofn á 180°c. Leggið úrbeinaða lærið á bretti og skerið í kjötið til að fletja kjötið eins vel út og hægt er. Blandið þá blaðlauk, sveppum og hvítlauk saman í matvinnsluvél og setjið síðan í skál. Myljið ostinn saman við, bætið olíunni saman við. Skerið döðlurnar niður og blandið öllu saman. Kryddið þá með salt og pipar, timjan og Bezt á lambið kryddinu. Byrjið á því að krydda kjötið með Bezt á lambið, takið þá fyllinguna og leggið á lambið og dreifið vel yfir. Rúllið þá kjötinu upp og bindið þétt með bandi sem þolir eldun, kryddið svo kjötið vel að utan með Bezt á lambið. Setjið í eldfast mót og inn í ofn í 30 mín. Eftir 30 mín setjið lok eða álpappír yfir kjötið, hægt er að halda áfram að elda kjötið á 180°c í 1-2 klst í viðbót eða lækka hitann niður í 150°c og leyfa því að hægeldast í 3-4 klst.
Aðferð — Piparostasósa
Setjið rjóma og 100 ml af vatni í pott ásamt piparosti, gott er að skera ostinn niður til að hann sé fljótari að bráðna. Þegar osturinn er bráðnaður, hristið þá saman 200 ml vatn og 1 pk Toro piparsósu í krukku t.d. og hellið út í pottinn. Leyfið sósunni að malla í örfáar mín. Flóknara er það ekki!
Gefðu uppskriftinni einkunn


