Döðlur & smjör
Kökur

Gulrótarkaka með sítrónukremi

Gulrótarkaka með sítrónukremi
Ég var eiginlega búin að gleyma hvað gulrótarkaka er góð. Hef ekki bakað slíka í háa herrans tíð, svo ég ákvað að skella í eina slíka. Ég var ekkert að flækja hlutina bakaði hana bara í einu 20 cm formi og skellti kremi yfir og hún bragðaðist svo vel! Ég gerði svo helling af sítrónusmjöri sem ég átti til inn í ísskáp, er með hálfgert æði fyrir því, það er eitthvað svo gott með öllu og mig langar hreinlega í sítrónu í allt sem ég baka en ég reyni að stilla því í hóf. En ég mæli svo mikið með því að gera sítrónusmjör og eiga inn í ísskáp hjá ykkur, æðislegt með ís, pönnukökum og öllu mögulegu.

Tími

40 mín

Ofnhiti

175°C

Hráefni

Gulrótarkaka

Sítrónusmjör

    Sítrónu smjörkrem

    Aðferð — Gulrótarkaka

    Hitið ofn í 175°c. Hrærið egg og sykur þangað til ljóst og létt. Bætið þurrefnunum saman við ásamt olíu og gulrótum. Hrærið létt saman, rennið í gegnum deigið og athugið hvort öll þurrefnin hafa blandast saman við. Spreyið 20 cm form að innan með baksturspreyi eða smjöri. Hellið deiginu í formið og bakið í 25-30 mín.

    Aðferð — Sítrónusmjör

    Uppskrift af því finnið þið hér.

    Aðferð — Sítrónu smjörkrem

    Þeytið smjörið í 2-3 mín, bætið flórsykri og rjóma saman við og hrærið aftur í nokkrar mínútur. Setjið sítrónusmjöri saman við, þrjár matskeiðar gefa milt sítrónubragð en ef þið viljið hafa það afgerandi þá mæli ég með að setja fimm matskeiðar. Setjið kremið annað hvort í sprautupoka og sprautið doppur yfir allan flötinn eða smyrjið kreminu á með sleikju. Njótið!

    Gefðu uppskriftinni einkunn

    Fleiri uppskriftir