Döðlur & smjör
Kökur

Hjónabandssæla

Gefðu einkunn

Hjónabandssæla
Hafa ekki allir íslendingar skoðun á því hvernig hjónabandssæla á að vera? Ég hef allaveganna haft mjög gaman að því að smakka ólíkar týpur og bera saman. Mín uppskrift er svona samsuða af því sem mér finnst best við hjónabandssælu. Það er m.a. kókos í minni sem ég held að sé ekkert mjög algengt en finnst gefa henni svo gott bragð með höfrunum og svo sultunni. Það er náttúrulega klassískt að nota rabarbarasultu eins og hún á að vera og fyrir mér er það frábært að nýta sultuna sem ég freistast alltaf til að gera en svo er ég í grunninn ekkert mikil sultukona og sultan bara hrannast upp inn í skáp. Svo flott að nýta hana í kökur. En svo er gaman að prófa aðrar sultur og myndi halda að hindberjasulta væri t.d. mjög skemmtileg hér.

Skammtar

8

Tími

45 mín

Ofnhiti

180°C

Hráefni

Skammtar:8

Aðferð

Stillið ofn á 180°c. Setjið öll hráefnin saman í skál nema sultuna og hnoðið saman, mér finnst best að gera það bara með höndunum. Uppskrifin er nóg í tvö minni form eða eitt stórt. Þrýstið 2/3 af deiginu í botninn á forminu, best er að hafa það svolítið þétt og engin göt. Dreifið þá sultunni yfir en það er smá smekksatriði hvað fólk vill mikla sultu, ég vill frekar meira heldur en minna. Dreifið þá restinni af deiginu yfir sultuna og setjið inn í ofn í 20-25 mín. Leyfið kökunni að kólna áður hún er skorin. Ég sker hana alltaf í ferninga og set í box ef hún er ekki borin fram strax. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir