Holli konfektmolinn
Samstarf með Muna

– Unnið í samstarfi við Muna – Fyrsta sem ég hugsaði þegar ég smakkaði á þessum holla konfektmola að þetta væri eins og að eiga Sörur í frystinum, tekur smá tíma að gera (þó aðeins brot af þeim tíma sem tekur að gera sörur) en geggjað að eiga í ísskápnum/frystinum með kaffinu, fyrir gestina eða bara til að grípa af því manni langar. Molinn leynir á sér með karamellunni inni, skemmtilega lagskiptur og hrikalega góður! Þegar ég hugsaði eftir að hafa gert þetta að það væru ekki allir sem hefðu áhuga að nostra við þetta svona, þá er líka lítið mál að taka kökuform skella kókos og möndlumassanum í botninn, döðlu karamelluna yfir, kæla og bræða súkkulaði og hella yfir, svo bara skera í bita – það er líka geggjað!
Skammtar
24
Hráefni
Skammtar:24
Döðlu karamella
Kókos og möndlumassi
Aðferð — Döðlu karamella
Setjið allt saman í matvinnsluvél og leyfið að vinna í 2-3 mín, gott er að stoppa vélina og skafa með fram hliðum ef eitthvað festist. Takið fram bretti eða bökunarpappír til að frysta kúlurnar og teskeið. Karamellan er fryst meðan við gerum hinn partinn svo hver skammtur er ein teskeið og dreifið þeim yfir brettið og frystið.
Aðferð — Kókos og möndlumassi
Setjið allt saman í matvinnsluvél og leyfið að vinna vel saman, þangað til að möndlurnar eru orðnar vel saxaðar. Tekur 3-4 mín og gott að stoppa og renna með fram hliðunum. Ef þið eruð með netta vél getur verið gott að gera þetta í tveimur skömmtum og blanda síðan saman í skál. Takið nú karamelluna úr frystinum og rúllið í kúlur. Takið matskeið af kókos ogmöndlumassanum og fletjið út í lófanum ykkar með puttunum. Setjið þá karamelluna í miðjuna og lokið í kringum hana. Rúllið síðan í kúlu og endurtakið næsta. Gott er að leyfa kúlunum að kólna áður en súkkulaðið er sett á. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni og veltið hverri kúlu upp úr súkkulaðinu og leggið á bökunarpappír til þess að storkna. Kúlurnar geymast í 2 vikur inn í ísskáp og þangað til að þær klárast í frystinum. Njótið!
Gefðu uppskriftinni einkunn


