Döðlur & smjör

Hrekkjavöku ostabakki

Samstarf með Gott í matinn

Hrekkjavöku ostabakki
Það verður ábyggilega seint sem að hrekkjavöku veitingarnar mínar verði hræðilegar, með gerviblóði og hrylling. Ég hef ótrúlega gaman af þessum degi en held ég muni alltaf halda mig í meiri hógværð og krúttlegri útfærslu af hrekkjavökunni. Svona til að gefa dæmi um það, þá set ég hlekki á fyrri uppskriftir hjá mér. Karamellu skyrkaka Fersk salsa dýfa

Hráefni

Aðferð

Skerið ofan af brie ostinum, u.þ.b. þriðjung af þykktinni. Leggið toppinn á bretti og skerið út fyrir andlitinu. Setjið neðri partinum af ostinum á bakka og setjið 2 msk af sultu á ostinum og dreifið jafnt úr henni. Leggið þá efri partinn ofan á. Raðið á bakkann ég tiltek það sem ég bauð upp á með mínum ost en það er um að gera að nota hugmyndaflugið og bjóða upp á það sem ykkur finnst gott með ostinum. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir