Döðlur & smjör
Kökur

Klassísk sjónvarpskaka

Klassísk sjónvarpskaka
Finnst ekki flestum sjónvarpskaka góð? Til að hún sé góð að mínum smekk þarf að vera nóg af kókos karamellu en ekki yfirþyrmandi mikið. En mér finnst skipta máli að setja klassískar uppskritir hér inn í bland við nýjar en mér finnst geggjað að eiga orðið stað á netinu með uppskrifta bankanum mínum sem stækkar alltaf og stækkar og ég get sagt ykkur að ég leita svo sannarlega oft í mínar uppskriftir til að elda og baka upp úr.

Tími

20 mín

Ofnhiti

180°C

Hráefni

Sjónvarps kaka

Kókos karamella

Aðferð — Sjónvarps kaka

Stillið ofn á 180°c. Þeytið saman egg og sykur þangað til létt og ljóst. Bætið þurrefnun saman við ásamt vanillu, þá er smjörið brætt og bætt saman við ásamt mjólk og hrærið vel saman. Spreyið eldfast mót eða u.þ.b. 25 cm form með PAM spreyi og hellið deiginu í. Bakið í 15 mín, meðan kakan bakast útbúið karamelluna og setjið yfir eftir 15 mín og leyfið að bakast í 5 mín í viðbót.

Aðferð — Kókos karamella

Allt sett saman í pott á miðlungshita, þangað til að allt er vel samlagað.

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir