Smákökur
Lakkrís sörur

Ætli sörur og lakkrístoppar berjist um toppsætið í íslenskum jólabakstri ár hvert? Bæði náttúrulega algjört sælgæti! En að þessu sinni ákvað ég að leyfa mér að taka hina hefðbundnu sörur og breyta aðeins til og setja á þær lakkrískrem og rjómasúkkulaði hjúp og namm hvað þær eru góðar! Ég er náttúrulega elska lakkrís það er mitt uppáhalds nammi og þegar vel heppnast að setja lakkrís í uppskrift er ég alsæl kona. Hér vill ég meina að útkoman er dásamleg ég allaveganna hef ekki látið frystirinn í friði frá því ég gerði þær – liggur við helli mér upp á kaffi bolla til að hafa afsökun um að fá mér sætt með. En vona að þið prófið og endilega deilið með mér hvort þið eruð jafn hrifin og ég!
Skammtar
40
Tími
60 mín
Ofnhiti
180°C
Hráefni
Skammtar:40
Makkarónur
Smjörkrem
Samsetning
Aðferð — Makkarónur
Stillið ofn á 180°c. Stífþeytið eggjahvíturnar. Sigtið saman í skál möndlumjölið og flórsykur. Blandið þurrefnunum varlega saman við eggjahvíturnar. Setjið blönduna í sprautupoka, gott er að nota hringlaga stút og sprautið dropum á bökunarpappír, ég vil ekki hafa mínar sörur mjög stórar svo ég miða við ca stærð á við 10 kr pening. Setjið í ofn og bakið í 10-15 mín. Þangað til ljósbrúnar.
Aðferð — Smjörkrem
Bútið lakkrísinn niður og setjið ásamt vatni í pott og stillið á miðlungshita. Leyfið honum að malla í pottinum í u.þ.b. 10 mín þangað til að blandan er soðin saman í sýróp. Setjið þá eggjarauðurnar í hrærivél og hrærið þangað til þær eru kremgular og þykkar. Hrærið í eggjarauðunum og hellið sýrópinu í mjórri bunu saman við eggjarauðurnar, passa þarf að gera það ekki of hratt svo sýrópið sjóði ekki rauðurnar. Þegar sýrópið er allt komið saman við eggjarauðurnar, þeytið saman í u.þ.b. 4-5 mín eða þangað til skálin er orðin kald/volg viðkomu. Skerið smjörið í litla teninga og með vélina í gangi, skellið einum og einum teninh í einu ofan í skálina, þangað til allir eru komnir ofan í, hrærið þá áfram í nokkrar mínútur.
Aðferð — Samsetning
Setjið kremið í sprautupoka, ef það er mjög mjúkt skellið því inn í frysti í nokkrar mínútur. Sprautið á skeljarnar með hringlaga stút, annað hvort setjið þið kökurnar svona beint í kæli/frysti eða takið ykkur smjörhníf og dreyfið úr kreminu út að köntum. Kælið kökurnar þangað til þær eru vel kaldar, bræðið þá súkkulaðið yfir vatnsbaðið í djúpri skál. Dýfið krem partinum ofan í súkkulaðið og leggið á smjörpappír. Kökurnar eru svo best geymdar í frysti og teknar út stuttu áður en á bera þær fram. Njótið!
Gefðu uppskriftinni einkunn


