Döðlur & smjör
Kvöldmatur

Marókkóskur kjúklingaréttur

5.0 · 2 einkunnir

Marókkóskur kjúklingaréttur
Ég kolfell fyrir þessum rétt þegar ég fékk hann í matarboði í fyrra. Ég fékk að taka mynd af uppskriftinni sem var úr Gestgjafanum og hef gert hann oft á þessu ári. Ég hef gert hann smá að mínum og deili því uppskriftinni eins og ég geri hana í dag. Svo hollur og góður réttur sem þarf ekki að hafa mikið fyrir nema bara að leyfa honum að malla í dágóðan tíma. Ég hvet ykkur til að prófa - Fullkominn haust/vetrar réttur.

Skammtar

4

Tími

60 mín

Hráefni

Skammtar:4

Aðferð

Skerið laukinn og chili smátt niður Hitið þá olíu á pönnu og steikið laukinn, engifer og chili á miðlungshita. Bætið út á pönnuna kanilstöngunum og rósmarín stilkunum. Látið krauma við meðalhita í 3–4 mínútur. Bætið kjúklingnum á pönnuna ásamt, kryddunum og steikið kjúklinginn á báðum hliðum. Bætið þá apríkósunum, tómötunum og hunanginu saman við. Setjið lokið á pottinn og leyfið að sjóða á miðlungshita í 30-40 mín, hrærið af og til í pottinum. Gott er að létt rista möndluflögurnar, saxa steinselju og bera fram með réttinum svo hver og einn getur sett ofan á. Mæli einnig með kúskús eða hrísgrjónum sem meðlæti. Njótið!

5.0 · 2 einkunnir

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir