Döðlur & smjör
Deigbakstur

Ómótstæðilegir ostabitar

Samstarf með Gott í matinn

Ómótstæðilegir ostabitar
Dásamlegir litlir bitar sem henta vel í vinaboðin, sem forréttur, í saumaklúbbinn og ég gæti talið endalaust en þið fattið mig. Tekur enga stund að græja og er tilbúið á 10 mínútum. Mér finnst frábært að eiga alltaf smjördeigsplötur í frystinum, því þær eru svo fjölhæft hráefni. Hægt að skella í sætt eða saðsamt á örskammri stundu.

Skammtar

16

Tími

20 mín

Ofnhiti

200°C

Hráefni

Skammtar:16

Aðferð

Takið smjördeigs plöturnar úr frysti og leyfið að þiðna í 5 mín. Stillið ofn á 200°c. Skerið deigið í átta parta, á hvern bita setjið þið smá dijon sinnep. Skerið þá fetaostinn í kubba ca 1,5 cm á stærð. Setjið einn fetakubb á hvern smjördeigspart. Raðið á bökunarpappírsklædda ofnplötu og bakið í 10 mín. Á meðan bitarnir eru í ofninum, ristið þá hneturnar á pönnu á miðlungshita í 4-5 mín. Þegar þið takið bitana úr ofninu færið þá yfir á fallegan disk, sáldrið hunangi og timjan yfir bitana og endið á því að mylja pekan hneturnar yfir. Bitarnir eru bestir bornir fram strax, meðan þeir eru volgir en eru einnig góðir kaldir. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir