Hver elskar ekki góðar brauðstangir? Ég hef séð hina og þessa vera gera ostafylltar brauðstangir sem eru geggjaðar en mig langaði ótrúlega að gera stakar brauðstangir sem bragðast dásamlega. Lykilhráefnið í þeim brauðstöngum er Brauðstangakrydd.
Stangirnar eru ótrúlega einfaldar í bakstri og tilvalið að gera með þegar það eru pizzakvöld á heimilinu en ég er fullviss að þau séu fastur liður á mörgum heimilum. Snilld sem smá forréttur meðan pizzurnar bakast – En þær bragðast auðvitað langbestar volgar úr ofninum. Ég hvet ykkur til að prófa kryddið og prófa að fara á næsta level í brauðstangagerð!
Deigið sem ég nota hér er grunndeigið sem ég nota í heimagerðar pizzur og er ótrúlega gott, þessi uppskrift dugir í tvær 12" pizzur en ég tvöfalda uppskriftina þegar ég geri pizzur fyrir okkar fjögurra manna fjölskyldu.
Skammtar
12
Tími
95 mín
Ofnhiti
210°C
Hráefni
Skammtar:12
Brauðstangir
Ofan á
Aðferð — Brauðstangir
Blandið saman sykri og þurrgerigeri saman við 100 ml volgt vatn. Í annað ílát blandið saman 100 ml volgu vatni, salti og olíu. Vigtið hveitið í skál (hrærivélarskál ef þið notið hrærivél). Setjið krókinn á hrærivélina og hrærið varlega af stað og hellið gerblöndunni saman við og síðan olíu vatninu. Leyfið vélinni að vinna í 5-10 mín. Leyfið deiginu að hefast í minnst klst. Stráið hveiti yfir borðið og setjið deigið á borðið, mótið ferning úr deiginu u.þ.b. 1 cm á þykkt, um 10 cm á breidd, lengið þá frekar til hliðanna. skerið stangirnar um 1 cm þykkar. Raðið á plötu með góðu millibili, leggið viskastykki yfir og leyfið að hvíla í 10-15 mín. Stillið ofn á 210°c og bakið brauðstangirnar i 10-12 mín.
Aðferð — Ofan á
Bræðið smjör í örbylgjuofni eða potti. Þegar brauðstangirnar koma úr ofninum penslið þær með smjöri og sáldrið kryddinu yfir svo það festist í smjörinu. Berið brauðstangirnar fram volgar – Þær hreinlega gerast ekki betri! Njótið!