Döðlur & smjör
Kökur

Þriggja laga súkkulaði ostakaka

Samstarf með Gott í matinn

Þriggja laga súkkulaði ostakaka
– Unnið í samstarfi við Gott í matinn – Trúið þið því þegar ég segi að þessi kaka er ofur einföld í bígerð? Mér persónulega finnst hún algjör show stopper, lögin á milli ólíkra súkkulaði tegunda sem blandast svo vel saman í munni! Namm! Ég ætla ekkert að rambla of mikið um hana heldur einfaldlega mana ykkur að prufa hana fyrir næsta matarboð eða hvaða tilefni sem ykkur vantar milda og góða köku.

Tími

300 mín

Hráefni

Botn

Ostakaka

Samsetning

Aðferð — Botn

Setjið kexið í matvinnsluvél og myljið í mylsnur. Einnig hægt að setja í plastpoka og berja með kökukefli eða einhverju þungu. Bræðið smjör og blandið saman við kexið. Notið 20-25 cm form, helst smelluform. Gott er að smella bökunarpappír ofan á botninn og klemma hann sléttan þegar hliðarnar eru festar við botninn. Pressið kexinu í botninn og kælið inn í ísskáp.

Aðferð — Ostakaka

Létt þeytið rjómann og leggið til hliðar. Leggið þá matarlím í bleyti í köldu vatni. Þeytið næst saman rjómaost, flórsykur og vanilludropa. Blandið rjómanum saman við rjómaostablönduna í 2-3 pörtum með sleikju. Bræðið 100 grömm af hverju súkkulaði í sér skál. Takið þá matarlímið, kreistið kalda vatnið vel úr því og leysið upp í 3-5 msk af sjóðandi vatni, blandið matarlíminu saman við rjómaostablönduna með sleikjunni. Skiptið rjómaostablöndunni í þrennt á milli súkkulaði skálanna þriggja og hrærið saman.

Aðferð — Samsetning

Takið þá kex botninn úr kæli, hellið dökka súkkulaðinu fyrst og jafnið út. Takið þá rjómasúkkulaðiblönduna og hellið varlega yfir og dreifið úr henni. Síðast er það hvíta súkkulaðið, hellið varlega og dreifið vel úr. Kakan er þá sett í kæli í minnst 4-5 tíma. Takið kökuna úr kæli og rennið hníf eða spaða meðfram kökunni til að losa hana frá forminu. Smellið þá forminu frá og takið bökunarpappírinn undan kökunni og setjið á disk. Til að skreyta hana líkt og ég geri hér takið 20 grömm af súkkulaði og setjið í skál ásamt 3 msk af rjóma, bræðið saman í örbylgju eða yfir vatnsbaði. Hrærið vel saman og setjið í sprautupoka með mjóum stút. Skerið jarðaber í tvennt og skreytið af vild með jarðaberjum og bláberjum. Njótið!

Gefðu uppskriftinni einkunn

Fleiri uppskriftir