Deigbakstur
Tómat & basilíku galette
Samstarf með Gott í matinn

– Unnið í samstarfi við Gott í matinn – Galette er hin fullkomna baka að mínu mati, það er dásamlegt að nostra við fallegar bökur inn á milli en það er líka bara frábært að geta flatt út deigið sett fyllinguna í og inn í ofn hún verður að mínu mati fallega rustic. Það er hægt að leika sér endalaust með innihaldið í svona bökum en ég hef deilt með ykkur tveimur áður Bláberja galette og galette með eplum og möndlum . Þessi er frábær við ýmis tilefni, í hádeginu á góðum sumardegi t.d. , í brönsinn eða sem léttur kvöldmatur með góðu salati.
Tími
120 mín
Ofnhiti
200°C
Hráefni
Deig
Bakaðir tómatar
Fylling
Aðferð — Deig
Hér er mikilvægt að bæði smjör og vatn sé kalt og gott er að skera smjörið í litla kubba. Setjið öll hráefnin saman í matvinnsluvél og hrærið saman í 1-2 mín. Hellið þá úr skálinni á borð og mótið kúlu úr deiginu. Setjið deigið í plast og þrýstið aðeins niður á deigið svo það sé auðveldara að rúlla það út. Kælið í klst.
Aðferð — Bakaðir tómatar
Stillið ofn á 200°c. Skerið tómatana í u.þ.b. cm breiðar sneiðar og leggið á bökunarpappírs klædda ofnplötu. Setjið tómatana inn í ofn í 20-25 mín. Þetta er gert til að draga úr vökvanum á tómötunum og þeir verða alveg dásamlega sætir við þetta. Takið tómatana út úr ofninum og leyfið þeim að hvíla meðan þið fletjið út deigið.
Aðferð — Fylling
Stillið ofn á 200 °c. Takið deigið úr ísskápnum og fletjið út í u.þ.b. 30 cm breiðan hring. Setjið deigið á bökunarpappírs klædda ofnplötu. Sáldrið þá maizenamjöli yfir en það er gert til að draga smá vökva í sig frá tómötunum. Raðið þá tómötunum ofan á deigið og basílikunni yfir en skiljið 2-3 cm eftir að kanti. Dreifið þá mozzarella kúlum yfir tómatana og sáldrið salt og pipar yfir. Þá er það bara að brjóta kantana inn og passið að það sé ekki glufur í deiginu svo það leki ekkert af fyllingunni úr við bakstur. Gott er að setja nokkra smjörklumba yfir fyllinguna og svo er bara að pensla deigið með eggi. Bakið í 25-30 mín og leyfið henni að kólna í 5-10 mín. Njótið!
Gefðu uppskriftinni einkunn


