Í útileguna

Hvítlauks grillsósa í hollari kantinum

July 22, 2024
grillsósa

Unnið í samstarfi við Gott í matinn

Íslendingar eru alveg þekktir fyrir að vera mikil sósuþjóð og ég og mín fjölskylda er engin undantekning, sósurnar í ísskápnum telja í tugum. Svo þegar sumarið kemur bætast grillsósurnar við líka.

Svo ég ætla alls ekki að lasta sósunum en mér fannst frábært að koma með sósu sem er töluvert hollari fyrir okkur en gefur ekki eftir í bragði og áferð!

Virkilega einföld að gera og ekki láta blekkjast þó það sé heill hvítlaukur í henni þá er hann svo mildur og góður eftir að hafa verið eldaður að heill hvítlaukur er algjört möst!


Hvítlauks grillsósa

1 hvítlaukur
1 tsk ólífuolía
500 ml kotasæla
2 msk ítölsk kryddblanda
½ tsk salt
¼ tsk pipar, meira eftir smekk

Skerið toppinn af hvítlauknum og setjið í álpappír, áður en honum er lokað hellið u.þ.b. einni tsk af ólífuolíu yfir hvítlaukinn og lokið síðan. Eldið í ofni á 180°c eða á grilli í 15-20 mín.

Setjið kotasæluna í skál og blandið með töfrasprota þangað til hún er orðin rennislétt í áferð, bætið þá kryddum saman við.

Takið þá hvítlauksrifinn úr hýðinu og setjið saman við kotasæluna, blandið vel saman með töfrasprotanum. Bætið auka salti og pipar við eftir smekk.

Sósan er frábær í bakaðar kartöflur með graslauk líkt og ég sýni hér en einnig almennt með kjöti, grilluðu grænmeti, möguleikarnir eru endalausir.

Njótið!

– Ert þú að fylgjast með á Instagram @dodlurogsmjor? –

You Might Also Like