Ég fékk einhverja óstjórnlega löngun í sítrónuköku um daginn, þá var ekkert annað en að skella í eina formköku og gúffa í sig tveimur sneiðum. Kakan er ótrúlega ljúffeng og þétt í sér. Ef að sítrónuköku löngunin blossar upp hjá ykkur líkt og hjá mér mæli ég með að prófa þessa!
Tími
55 mín
Ofnhiti
175°C
Hráefni
Sítrónu formkaka
Glassúr
Aðferð — Sítrónu formkaka
Stillið ofn á 175°c. Þeytið saman smjör og sykur í 2-3 mín, bætið eggjunum saman við einu í einu. Blandið saman við sýrðum rjóma, sítrónusafa og sítrónuberki og hrærið létt saman við. Þá er hveiti, matarsóda og salti bætt út í og hrært saman. Setjið í formkökuform eða form sem ykkur langar að nota. Gott er að klæða það að innan með bökunarpappír eða notast við Pam olíu sprey. Setjið inn í ofn og bakið í 40-45 mín eða þangað til að prjónn/hnífur kemur hreinn upp úr þegar stungið er í kökuna. Leyfið kökunni að kólna lítillega áður en glassúrinn er settur á.
Aðferð — Glassúr
Blandið öllum hráefnunum saman í skál og hrærið saman. Hægt er að sleppa eggjahvítunni og nota eingöngu sítrónusafa en eggjahvítan gerir glassúrinn stífan, hvítan og fallegan. Dreifið glassúrnum yfir kökuna og berið fram. Njótið!