Kökur

Karamellu & kanil bollakökur

June 6, 2023
karamellu og kanil bollakökur

Samstarf // Nói Síríus

Ég hugsaði að það væri kominn tími á dýrindis bollakökur hingað á síðuna. Þessar eru algjörlega í stíl við veðrið upp á síðkastið, s.s. dálítill haustfílingur í þeim, kanill og karamella því ég get ekki sagt að andinn með jarðaberjum og límónu hafi verið yfir mér sem hann hefði eflaust verið á þessum tíma árs ef að sólin og hlýjan væri að láta sjá sig.

En þær voru alveg dásamlegar þessar og mér finnst skemmtilegt að brjóta upp og baka bollakökur reglulega er ekki nógu dugleg við það miðað við hvað það er alltaf einstaklega einfalt.

Eitt ráð til að fá “fullkomnar” bollakökur er að eiga bollaköku/muffins form úr sílikon eða stáli til þess að setja pappaformin í með því helst fallegt form á kökunum við bökun. Það þarf samt að passa að taka kökurnar úr því formi áður en þær kólna alveg annars er hætta á að þær svitni meðan þær kólna.

karamellu og kanilbollakökur
karamellu og kanilbollakökur

Karamellu & kanil bollakökur 12-15 stk

120 g smjör, við stofuhita
150 g púðursykur
2 egg
170 g hveiti
20 g maizenamjöl
1½ tsk lyftiduft
¼ tsk salt
1½ tsk kanill
2 tsk vanilludropar
125 ml súrmjólk / ab mjólk

Stillið ofn á 180°c. Setjið smjör og púðursykur saman í hrærivélarskál og þeytið saman í 2-3 mín, bætið þá eggjunum saman við einu í einu. Mælið þá þurrefnin og bætið saman við deigið og hrærið varlega saman. Þá er súrmjólkinni og vanilludropum bætt saman við og þeytt þangað til allt er samlagað. Gott er að taka sleikju og skafa meðfram botninum á skálinni til að vera viss að ekkert loði við skálina og allt sé vel blandað.

Takið 12-15 muffinsform, gott er að hafa sílikon eða ál muffinsform til að halda fallegri lögun. Þá er pappaformin sett ofan í og fyllt tvo þriðju hluta af deigi.

Bakið í 15 mín eða þangað til að hnífur kemur hreinn úr miðju kökunnar. Kælið.

Karamellan

50 g Doré karamellu súkkulaði dropar frá Nóa Síríus
50 g Karamellusósa, hægt að kaupa tilbúna eða gera úr rjómakúlum frá Nóa Síríus

Setjið karamellusósuna í örbylgjuofn og hitið í 15-30 sek. Bætið súkkulaðinu saman við og leyfið að bráðna. Ef karamellan verður of stíf setjið hana í nokkrar sek inn í örbylgjuofninn.

Krem

100 g Doré karamellu súkkulaði dropar frá Nóa Síríus
50 ml rjómi
200 g smjör
300 g flórsykur
1 tsk vanilludropar

Bræðið súkkulaðið og rjómann saman í örbylgjuofni og leyfið að kólna lítillega. Á meðan þeytið saman smjör, flórsykur og vanilludropa. Bætið þá súkkulaðinu saman við og þeytið vel, þangað til að kremið er orðið létt og ljóst.

Njótið!

– Endilega fylgstu með á Instagram @dodlurogsmjor –

You Might Also Like