Kvöldmatur

Einfaldar grillaðar tortillur

August 18, 2023
grillaðar tortillur

Unnið í samstarfi við Gott í matinn

Það er eitthvað við sumartímann og grillið, ef það er gott veður langar manni hreinlega ekki inn til að elda matinn. Svo þá er bara um að gera að græja matinn úti og beint á grillið.

Hérna þurfa reyndar flestir að elda hakkið á pönnu inni nema þú lumir á pönnu sem þolir grillið.

Einfaldar tortillur sem eru brotnar saman í fernt með kjöti, grænmeti og sósu, dásamlega bragðgóðar og öfureinfalt að græja.

grillaðar tortillur
grillaðar tortillur

Grillaðar tortillur

300 g nautahakk
2 msk mexíkó krydd (t.d. frá Santa Maria)
4 tortillur
150 g cheddar ostur, rifinn
fersk salat
1 tómatur, niðurskorinn
ostasósa

Byrjið á því að steikja hakkið og kryddið með mexíkó blönduðu kryddi.

Takið þá tortilla vefjurnar og skerið upp í þær til helmings, svo hægt sé að brjóta hana í fernt. Hugsið þá vefjuna sem fjóra parta, setjið kjötið í einn, handfylli af osti í annan. Setjið síðan tómat og kál á einn part og sósu á þann síðasta. Brjótið þá vefjuna saman með því að leggja hana saman þar sem þið skáruð upp og síðan lagt yfir næsta fjórðung og þann seinasta. Þá ætti allt að vera vel pakkað inn.

Kveikið undir grillinu og leyfið að hitna. Leggið þá vefjurnar á grillið og leyfið að grillast í 4-5 mín, snúið þeim við á grillinu og gott er að pressa þétt niður á þær með spaða. Leyfið að grillast í nokkrar mínútur á seinni hliðinni eða þangað til að osturinn er farinn að bráðna vel.

Takið af grillinu og njótið með sýrðum rjóma eða jafnvel guacomole.

Njótið!

– Endilega fylgstu með á Instagram @dodlurogsmjor –



You Might Also Like