Deigbakstur

Skinkuhorn

April 4, 2020
skinkuhorn

– Unnið í samstarfi við Gott í matinn –

Maður er ekki íslenskur matarbloggari nema að luma á uppskrift af skinkuhornum. Svo ég ætla að bæta minni uppskrift inn í flóruna sem er nú þegar til staðar á netinu.

Eiga ekki flestir góðar minningar af góðum skinkuhornum, ég dásamaði þær frænkur sem bjuggu til góð skinkuhorn en vonbrigðin voru jafnmikil ef maður kom í boð og fékk horn sem voru skraufaþurr með nánast engri fyllingu, frekar glatað.

skinkuhorn

Mér finnst best að baka hornin, leyfa þeim að kólna lítillega og setja þau beint í frystinn ef ekki á að borða þau strax. Það er eitthvað svo gott að eiga skinkuhorn í frystinum og taka út og setja í nokkrar mínútur í ofninn áður en þau eru borin fram. Eins og að bera fram nýbakað við hvaða tækifæri sem er, algjör snilld!

Deig- 32 stk

400 ml mjólk
12 g þurrger ( 1pk / 2-3 tsk)
1 msk sykur
100 ml olía
1 tsk salt
660 g hveiti (Blár Kornax)

Hitið mjólkina þangað til hún er ylvolg, í örbylgjuofni eða potti. Setjið í hrærivélina og bætið þurrgerinu saman við, hrærið létt saman. Leyfið því að standa örlítið meðan þið takið hin hráefnin saman. Bætið þá restinni af hráefnunum saman við og hrærið með krók á lágri stillingu í 3-4 mín.

Takið deigið sem hefur fest við krókinn af og takið deigið í hendurnar á ykkur og hnoðið í kúlu. Setið deigið aftur í skálina og rakt viskastykki yfir.

Leyfið deiginu að hvíla í minnst klst.

Fylling

200 g skinka
250 g (1 pk) smurostur með sveppum

Skerið skinkuna niður í ferninga og blandið saman við smurostinn.

Aðferð

Takið deigið og setjið á hveitistráð borð og skiptið því upp í fjóra hluta. Takið fyrsta hlutann og fletjið út, reynið að fletja það út í hring eftir bestu getu. Gott er að fletja það vel út eða um 5 mm á þykkt u.þ.b. Skerið síðan deigið eins og pizzu í átta einingar.

Setjið u.þ.b. eina teskeið af fyllingu á hvern þríhyrninn og setjið á breiðari endann. Gott að setja smá rifinn ost til að gera extra djúsí.

Til að rúlla þeim upp, tosið aðeins í hornin sitthvoru megin við fyllinguna, lokið fyllinguna inni með deiginu og rúllið upp. Tosið í mjóa endann til að fá brotið í þeim til að enda undir horninu.

Leggið hornin á bökunarpappír og látið mjóa endann snúa niður og hafið gott bil á milli þeirra. Passið að fyllingin sé lokuð inni í deiginu svo hún renni ekki út um allt þegar þau fara inn í ofn. Leyfið þeim að hefast í 20-30 mín.

Endurtakið með hina þrjá hluta af deiginu.

Kveikið á ofninum og stillið á 200°c, blástur. Takið eitt egg og hrærið létt saman með gaffli, penslið yfir hornin til að fá fallega áferð á þau.

Bakið hornin í 10 mín eða þangað til þau eru orðin gullinbrún.

Njótið!

– Endilega fylgstu með á Instagram @dodlurogsmjor –

You Might Also Like