Deigbakstur

Brioche snúðar með pekan hnetum og hvítu súkkulaði

April 3, 2020
döðlur og smjör

Ég hef lengið verið forvitin að baka úr brioche deigi, vinsældir þess gengu yfir fyrir svona tveimur árum og margir veitingastaðir skiptu hamborgarabrauðunum út hjá sér fyrir brioche brauð t.d. En fyrir þá sem eru ekki kunnugir þessu deigi, er þetta gerdeig gert með mjólk og smjöri og deigið leyft að hefast í kæli. Brauðið á uppruna sinn í Frakklandi sem gerir það sjálfkrafa af gourmé mat, ekki satt? Það er svo mjúkt og dásamlegt að vinna með það.

brioche snúðar

Ég er mjög spennt að prófa mig áfram með þetta deig og deila með ykkur. Nota þessa grunnuppskrift og prófa ýmsar útfærslur.


Brioche deig

2 egg
50 g sykur
1 tsk salt
240 ml mjólk
12 g þurrger (1 pk)
170 g smjör
560 g hveiti

Hrærið saman egg, sykur og salt. Mælið mjólkina og hitið í örbylgjuofni eða í potti þangað til hún er orðin volg. Blandið gerinu við deigið ásamt mjólkinni og hrærið létt saman, sama á við um smjörið bræðið það og það sett út í deigið. Skiptið yfir í krók á vélinni.

Vigtið hveitið saman við og hrærið því örlítið saman með króknum í höndunum svo það fari ekki út um allt þegar þið setið hrærivélina af stað. Hrærið í góðar 5 mínútur og er eðlilegt að deigið klífi aðeins upp krókinn.

Látið deigið í skál sem kemst inn í ísskápinn hjá ykkur og setjið plastfilmu þétt upp að deiginu og leyfið að hefast í minnst 3 klst, gott er að gera það að kvöldi og leyfa því að hefast yfir nótt.

Fylling

200 g smjör
100 g möndlumjöl
100 g púðursykur
1 tsk kanill (má sleppa)

100 g hvítt súkkulaði
100 g pekan hnetur
50 ml karamellusósa (mæli með frá Kjörís)

Bræðið smjör og blandið hinum hráefnunum saman og hrærið vel saman.

Samsetning

Takið deigið úr kæli og setjið á hveitistráð borð. Fletjið deigið út þannig að það sé u.þ.b. 15 cm á breidd 40 cm á lengd. Dreifið fyllingunni jafnt yfir deigið og dreifið hvítu súkkulaði, pekanhnetum og karamellu yfir. Rúllið deiginu þétt upp, styttri hliðina. Gott er að mæla snúðana áður en þeir eru skornir svo þeir séu jafnir. Mælið 5 cm á hvern snúð en þannig ættu að koma 10 snúðar úr uppskriftinni.

Ég setti snúðana í eitt 23 cm form og eitt 15 cm form og það kom vel út. Einnig hægt að setja í eldfast mót. Setjið bökunarpappír í botninn og spreyið með PAM spreyi yfir. Skerið snúðana og raðið þeim í form með u.þ.b. 1 cm millibili. Setjið plastfilmu yfir formin og leyfið snúðunum að hefa sig í u.þ.b. klst.

Stillið ofn á 160°c, blástur. Setjið formin með snúðunum inn í ofn en gott er að hylja opið fyrstu 20 mín af bakstrinum svo snúðarnir verði ekki of dökkir. Lok eða plata sem þolir ofn gerir verkið. Leyfið þeim að bakast í 20 mín takið þá lokið af og bakið í 25 mín í viðbót. Gott er að stinga prjón á milli snúðanna eftir þann tíma til að athuga hvort þeir séu tilbúnir, ef prjónninn kemur hreinn út eru snúðarnir tilbúnir.

Leyfið snúðunum að hvíla í nokkrar mínútur í formunum áður en þeir eru teknir úr, drisslið karamellusósu yfir og að lokum dass af flórsykri.

Njótið!

döðlur og smjör

You Might Also Like