Kvöldmatur

Þorskur í sítrónurjómasósu

September 26, 2022
þorskur

– Samstarf // Gott í matinn –

Ég er alltaf að reyna að vera duglegri að borða fisk, ég hef alveg á tilfinningunni að það sé margir sem tengja þar. Mér finnst vissulega soðinn fiskur með kartöflum alveg lúmskt gott en ég reyni að vera dugleg að gera ólíka fiskrétti því mér finnst það fara vel ofan í fjölskylduna svo það er alltaf gott að bæta við flóruna sem maður er að vinna með af fiskréttum. Svo vona að þessi slái í gegn á ykkar heimililum og fá fasta viðveru þar.

þorskur í sósu
þorskur í sósu

Þorskur í sítrónurjómasósu – fyrir 4 –

800 g fiskur (þorskur eða ýsa)
1 msk olía
1 blaðlaukur
3 hvítlauksrif
2 msk sterkt sinnep (dijon)
2-3 msk sítrónusafi
100 ml rjómi
100 ml hreinn smurostur
salt & pipar eftir smekk
rifinn ostur (má sleppa)
basilíka

Stillið ofn á 200°c. Skerið fiskinn í bita og leggið í eldfast form. Skerið þá blaðlaukinn í sneiðar og setjið í pott ásamt olíu og kreistum hvítlauk, leyfið því að steikjast í 2-3 mín. Bætið saman við sinnepi, sítrónusafa, rjóma, smurosti og salt og pipar, hrærið vel saman. Þessu er leyft að blandast saman þangað til að smurosturinn er allur bráðnaður. Dreifið þá úr pottinum yfir fiskinn og setjið ost yfir ef ykkur langar. Setjið inn í ofn í 15 mín, takið út og dreifið ferskri basilíku yfir réttinn.

Gott er að bera réttinn fram með hrísgrjónum eða kartöflum og fersku salati.

Njótið!

– Ertu að fylgjast með á Instagram Döðlur & smjör ? –

You Might Also Like