Deigbakstur

Amerískar súkkulaði pönnukökur

February 26, 2021
amerískar pönnukökur

– Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan –

Það er fátt betra en að vakna um helgar og útbúa dýrindis brunch. Við bökum mjög oft pönnukökur um helgar eftir ósk krakkana og svo kemur fyrir að við förum skrefinu lengra og gerum bara full on brunch. Egg, beikon, pönnsur og allt þetta helsta.

Þessar amerísku pönnukökur eru smá svona extra djúsí, með smá súkkulaðikeim og ekki sakar að saxa súkkulaði og blanda saman við áður en pönnukökurnar eru steiktar, okey namm var mögulega að hugsa þetta bara núna og held ég verði bara að prófa það næst!

pönnukökur

Amerískar súkkulaði pönnukökur -u.þ.b. 20 stk

350 g hveiti
3 tsk lyftiduft
4 msk Swiss Miss
1 msk kakó
½ tsk salt
1 tsk vanilludropar
1 egg
300 ml ab mjólk
200 ml mjólk
40 g smjör, bráðið
100 g dökkt súkkulaði (ef þú vilt gera þær extra djúsí)

Blandið hráefnunum saman í skál og hrærið vel saman, þangað til að deigið er kekklaust. Gott er að leyfa deiginu að standa í smá stund áður en það er steikt, leyfa því aðeins að taka sig. Ef þið setjið súkkulaði saman við, saxið það og blandið létt saman við deigið.

Setjið pönnu á helluna og stillið á meðalháan hita. Steikið pönnukökurnar þangað til þær eru farnar að sýna loftbólur í deiginu, þá er þeim snúið við og steiktar í 1-2 mín á hinni hliðinni.

Berið t.d. fram með hlynsírópi og ferskum ávöxtum.

Njótið!

– Endilega fylgstu með á Instagram @dodlurogsmjor –

You Might Also Like