Bakstur

Bláberja galette

August 16, 2021
bláberja galette

Nú er berja tíminn formlega runninn upp. Uppskeran á suðurlandinu verður þó eflaust ekki mjög mikil þetta sumarið, sökum veðursins. En víða annars staðar er hún eflaust ljómandi.

En mér finnst alltaf sjarmerandi að kíkja í berjamó, þrátt fyrir að endast ekkert ofboðslega lengi hverju sinni. Svo er ekkert betra en að nota nýtýnd ber í dásamlegar kökur, eftirrétti eða fara hefðbunda leið og sulta og safta. Hérna skelli ég í einfalda böku með bláberjum. Mæli hiklaust með að þið prófið þessa!

bláberja galette

Bökudeig

160 g hveiti
25 g sykur
1 tsk salt
170 g smjör, kalt
50 ml vatn, ískalt
1 egg (til penslunnar)
1-2 msk sykur (perlusykur)

Hægt er að notast við matvinnsluvél eða gera deigið í höndunum. Setjið hveiti, sykur og salt á borðið, gott er að hafa diskamottu undir til að vernda borðið. Skerið smjörið í bita og blandið saman við hveitið í þremur skömmtum. Hægt er að nota hnífa til að saxa smjörið saman við hveitið eða sköfu, smá þolinmæðis vinna en svo þess virði. Mixið saman þangað til að smjörið er orðið mjög smátt. Bætið þá vatninu saman við smá í einu þangað til að deigið er formað, ekki of þurrt en ekki of blautt. Mótið kúlu og þrýstið það aðeins niður, setjið í plast og inn í ísskáp. Leyfið deiginu að hvíla í minnst 2 klst. Hægt er að geyma deigið inn ísskáp eða í frysti ef það er gert fyrirfram.

Ef deigið er gert í matvinnsluvél er hveiti, sykur og salt sett saman í og smjörið skorið niður og sett saman við í þremur skömmtum þangað til að það er orðið kornótt, alls ekki alveg samblandað þvi við viljum halda í litlu smjörblettina í deiginu, það er það sem gerir deigið stökkt eða flaky. Takið deigið úr matvinnsluvélinni og setjið á borð og hellið vatninu saman við og mótið þangað til það er ekki of þurrt en ekki of blautt. Framhald sjá að ofan.

Fylling

350 g bláber
100 g sykur
40 g hveiti
börkur af einni sítrónu
1 msk sítrónusafi

Blandið öllum hráefnunum saman í skál og hrærið þau létt saman.

Samsetning

Stillið ofn á 210°c. Takið deigið úr kæli, setjið dass af hveiti á borðið og takið deigið úr plastinu og á borðið. Byrjið að fletja deigið út með kökukefli með því að fletja alltaf í áttina frá ykkur og snúa deiginu um fjórðung jafnt og þétt. Svo deigið sé laust frá borðinu og jafn þykkt á alla kanta. Bætið hveiti undir ef þarf.

Þegar deigið er útflatt leggið það yfir kökukeflið og færið yfir á bökunarpappír. Penslið deigið með eggið, dreifið fyllingunni yfir deigið og skiljið u.þ.b. 3 cm eftir frá kanti, til að brjóta inn.

Penslið kantana með eggi og sáldrið sykri yfir. Setjið inn í ofn og stillið á 20 mínútur. Eftir 20 mín. er hitinn lækkaður í 175°c og bakað í 20 mín í viðbót.

Berið fram með rjóma eða vanilluís.

Njótið!

– Fylgstu með á Instagram @dodlurogsmjor –

You Might Also Like