Bakstur/ Morgunmatur

Bláberja muffins

September 9, 2020
döðlur og smjör

Nú hvað á hverju fer hver að verða seinastur til að næla sér í íslensk bláber út í móa. Frostið fer að fara að skella á og á einni nóttu er tækifærið búið.

Það voru týnd slatti af berjum á þessum bæ en þau fengu að fara í muffins og svo í frystinn, þá er alltaf hægt að taka frostin ber og búa til eitthvað gúmmelaði úr þeim allt árið um kring. Ég nýt þess eiginlega frekar heldur en að eiga fulla skápa af sultu. Skella þeim í boost og kökur er eitthvað sem hljómar betur og svo sníki ég bara eina og eina krukku hjá ömmu í staðinn.

En áður en að berin voru sett í frysti ákvaðum við krakkarnir að skella í eina uppskrift og hér er afraksturinn af því.


Bláberja muffins

Kröns

150 g sykur
100 g hveiti
55 g smjör
1 msk vatn
1 tsk kanill

Vigtið öll hráefnin og setjið saman í skál. Blandið saman með höndunum og geymið inn i kæli meðan muffins deigið er útbúið.

Muffins

250 g hveiti
100 g sykur
3 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
örlítið salt
110 g smjör
250 ml mjólk
1 egg
200 g bláber

Stillið ofn á 215°c. Blandið þurrefninum saman í skál. Vigtið smjörið og setjið í pott, bræðið smjörið á miðlungshita. Blandið mjólk og eggi saman við smjörið. Setjið bláberin saman við þurrefnin og hrærið örlítið saman við. Hellið þá smjöri, mjólk og egginu saman við í nokkrum atrennum út í þurrefnin og hrærið varlega saman með sleikju.

Finnið til muffins form og setjið á ofnskúffu. Ef þið gerið stórar muffins dugar deigið í 12 stk en í venjuleg muffins form 20 stk (eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan). Fyllið formin upp að tveimur þriðju af formunum. Náið í krönsið inn í ísskáp og setjið u.þ.b. matskeið af því ofan á hverja köku.

Færið plötuna inn í ofn fyrir miðju og bakið í 12-15 mín eða þangað til að prjónn kemur hreinn út. Lengja þarf tímann ef að notuð eru stærri form.

Leyfið þeim að kólna lítilega og njótið!

– Fylgstu einnig með á Instagram @dodlurogsmjor –

You Might Also Like