Kvöldmatur

Einfaldasta og besta pastað?

February 22, 2024
hvítlauks og pestó pasta

Samtarf // Gerum daginn girnilegan

Þetta pasta fer svo auðveldlega á topp þrjá listann minn ásamt þessu hér, sem hefur hingað til verið mitt go to pasta en held að þetta taki við af því. Uppskriftin er innblástin af kjúklingaréttinum hennar Berglindar GRGS sem margir kannast eflaust við.

Uppskriftin er virkilega einföld en á sama tíma svo góð. Mér finnst stundum góð tilbreyting að hafa pastað einfalt en að sjálfsögðu er hægt að bæta við það auka grænmeti. Ég lofa ykkur af þessu pasta verðið þið svo sannarlega ekki svikin!

hvítlauks og pestó pasta
hvítlauks og pestó pasta

Hvítlauks og pestó pasta – fyrir 3-4 –

2-3 kjúklingabringur
1 msk olía
3 hvítlauksgeirar
½ hvítlauksostur
200 ml rjómi
100 ml vatn
½ krukka rautt pestó Filippo Berio
½ tsk salt
pipar eftir smekk

Pasta, De Cecco Tagliatelline n° 204
Furuhnetur
Ostur

Skerið kjúklinginn í litla bita og setjið til hliðar.

Setjið pönnu á helluna og stillið á miðlungshita, mælið eina matskeið af olíu og setjið á pönnuna, takið utan af hvítlauknum og skerið smátt niður eða kreistið með hvítlaukspressu. Bætið saman við olíuna, leyfið að steikjast í u.þ.b. 1 mín. Bætið þá kjúklingnum saman við og steikið í nokkrar mín.

Rífið niður ostinn með rifjárni og blandið saman við kjúklinginn ásamt rjóma, vatni, pestó og salt og pipar. Eldið þangað til að osturinn er allur bráðnaður eða u.þ.b. 5-10 mín.

Setjið vatn í pott og leyfið suðunni að koma upp. Setjið þá tagliatelline út í vatnið (gott að áætla um 4-5 einingar á mann) Sjóðið í 6-10 mín eða þangað til að það er orðið al dente.

Sigtið vatnið af pastanu og blandið því saman við kjúklinginn og sósuna og hrærið vel saman. Gott er að sáldra nokkrum furuhnetum yfir og toppa með rifnum osti yfir.

Eins og með alla pasta rétti er gott að bera þá fram með góðu hvítlauksbrauði.

Njótið!

– Ert þú að fylgjast með á Instagram @dodlurogsmjor? –

You Might Also Like