Deigbakstur

Serrano skinkuhorn

January 25, 2021
skinkuhorn

– Unnið í samstarfi við Mjólkursamsöluna –

Á þessum bæ eru nánast alltaf til skinkuhorn í frystinum, krökkunum finnst svo gott að taka þau með í nesti í skólann. Það er nánast smá sorg ef þau eru ekki til. Svo ég geri þau alltaf reglulega, enda þekki ég ekki neina einustu manneskju sem þykja þau ekki góð.

En ég ákvað að bregða aðeins út af vananum og prófa eitthvað nýtt, ég var búin að smakka rjómaostinn með karamelíseruðum lauk og var amazed! Hann er svo góður, hvort sem það er á rista brauð eða í sósuna – Hann verður svo mikið keyptur. Þannig ég ákvað að skella honum í skinkuhorn með serrano skinku og smá svörtum pipar og þau brögðuðust dásamlega. Svona dálítil fullorðins skinkuhorn. Ég hvet ykkur svo sannarlega til að prófa!

skinkuhorn

Serrano skinkuhorn

Deig- 32 stk

400 ml mjólk
12 g þurrger ( 1pk / 2-3 tsk)
1 msk sykur
100 ml olía
1 tsk salt
660 g hveiti (Blár Kornax)

Hitið mjólkina þangað til hún er ylvolg, í örbylgjuofni eða potti. Setjið í hrærivélina og bætið þurrgerinu saman við, hrærið létt saman. Leyfið því að standa örlítið meðan þið takið hin hráefnin saman. Bætið þá restinni af hráefnunum saman við og hrærið með krók á lágri stillingu í 3-4 mín.

Takið deigið sem hefur fest við krókinn af og takið deigið í hendurnar á ykkur og hnoðið í kúlu. Setið deigið aftur í skálina og rakt viskastykki yfir.

Leyfið deiginu að hvíla í minnst klst.

Fylling

1 bréf serrano skinka
1-2 pk. Rjómaostur með karamelísuðum lauk
svartur pipar
Rifinn ostur (til að setja ofan á)

Skerið skinkuna niður  og blandið saman við rjómaostinn.

Aðferð

Takið deigið og setjið á hveitistráð borð og skiptið því upp í tvennt. Takið fyrri hlutann og fletjið út, reynið að fletja það út í hring eftir bestu getu. Gott er að fletja það vel út eða um 5 mm á þykkt u.þ.b. Skerið síðan deigið í 16 þríhyrninga.

Setjið u.þ.b. eina teskeið af fyllingu á hvern þríhyrninn og setjið á breiðari endann. Sáldrið svörtum pipar yfir.

Til að rúlla þeim upp, tosið aðeins í hornin sitthvoru megin við fyllinguna, lokið fyllinguna inni með deiginu og rúllið upp. Tosið í mjóa endann til að fá brotið í þeim til að enda undir horninu.

Leggið hornin á bökunarpappír og látið mjóa endann snúa niður og hafið gott bil á milli þeirra. Passið að fyllingin sé lokuð inni í deiginu svo hún renni ekki út um allt þegar þau fara inn í ofn. Leyfið þeim að hefast í 20-30 mín.

Endurtakið með hinn hlutan af deiginu.

Kveikið á ofninum og stillið á 200°c, blástur. Setjið smávegis mjólk í glasi og  penslið yfir hornin til að fá fallega áferð á þau.

Bakið hornin í 10 mín eða þangað til þau eru orðin gullinbrún.

Njótið!

– Endilega fylgstu með á Instagram @dodlurogsmjor –

You Might Also Like