Smákökur

Sörur (Sara Bernharts)

December 12, 2019
sörur

Íslendingar eru sjúkir í Sörur í desember. Það verður smá æði, margir hópa sig saman til að útbúa þær- saumaklúbbar og fjölskyldur, aðrir sjá tækifærið í þessu og selja heimagerður sörur í hundruðavís. Það er vissulega alltaf gaman að koma saman vinkonur og baka og deila svo á milli, algjör gæðastund.

Þessi jólin fór ég alveg omvendt í sörubakstrinum, datt bara í hug að henda í botna samhliða því að við vorum að elda kvöldmat og svo bara að því ég var byrjuð gat ég alveg eins gert krem og sett á þær. Svo settar í frysti og dýft í súkkulaði daginn eftir.

sörur

Makkarónur

3 eggjahvítur
200g möndlumjöl
200 g flórsykur

Stillið ofn á 180°c. Stífþeytið eggjahvíturnar. Sigtið saman í skál möndlumjölið og flórsykur. Blandið þurrefnunum varlega saman við eggjahvíturnar.

Setjið blönduna í sprautupoka, gott er að nota hringlaga stút og sprautið dropum á bökunarpappír, ég vil ekki hafa mínar sörur mjög stórar svo ég miða við ca stærð á við 10 kr pening. Setjið í ofn og bakið í 10-15 mín. Þangað til ljósbrúnar.

Smjörkrem

1½ dl sykur 
1½ dl vatn
6 eggjarauður
2 msk kakó
2 tsk kaffi (duft)
300 g smjör
200-300 g súkkulaði til hjúpunar

Setjið vatn og sykur saman í pott og stillið á miðlungshita. Leyfið að malla í pottinum í u.þ.b. 10 mín þangað til að það er soðið saman í sýróp, mér finnst gott að setja kaffiduftið saman við sýrópið áður því er blandað við eggjarauðurnar. Setjið eggjarauðurnar í hrærivél og hrærið þangað til þær eru kremgular og þykkar.

Hrærið í eggjarauðunum og hellið sýrópinu í mjórri bunu saman við eggjarauðurnar, passa þarf að gera ekki of hratt svo þær sjóði ekki rauðurnar. Þegar sýrópið er allt komið saman við. Þeytið saman í u.þ.b. 4-5 mín eða þangað til skálin er orðin kald/volg viðkomu.

Skerið smjörið í litla teninga og með vélina í gangi, skellið einum og einum í einu ofan í skálina, þangað til allir eru komnir ofan í, hrærið þá áfram í nokkrar mínútur.

Setjið kremið í sprautupoka, ef það er mjög mjúkt skellið því inn í frysti í nokkrar mínútur. Sprautið á skeljarnar með hringlaga stút, annað hvort setjið þið kökurnar svona beint í frysti eða takið ykkur smjörhníf og dreyfið úr kreminu út að köntum. Frystið kökurnar þangað til þær eru alveg frosnar, bræðið þá súkkulaðið yfir vatnsbaðið í djúpri skál.

Dýfið krem partinum ofan í súkkulaðið og leggið á smjörpappír. Kökurnar eru svo best geymdar í frysti og teknar út stuttu áður en á bera þær fram.  

You Might Also Like