Bakstur

Vatnsdeigsbolla með eplum og kanil

February 6, 2024
vatnsdeigsbolla

Samstarf // Gott í matinn

Þegar ég fór að pæla hverslags bollu mig langaði að setja inn fyrir ykkur í ár, þá fór ég að pæla í einhverju hlýlegu eins og kanil og það fór svo að ég ákvað að gera epla og kanil bollur og herre gud, hvað ég er ánægð með útkomuna.

Okkur Gulla fannst eiginlega best að lýsa henni sem vetrarbollu eða hátíðarbollu því að epli og kanil gefa einhverja svona hlýja tilfinningu eða það var allaveganna okkar upplifun.

Krönsið er algjörlega ómissandi með þessu, brýtur upp áferðina og gerir hana öðruvísi á einfaldan hátt og þar sem ég er ekki mikil sultu kona, þá var þessi sulta sem er einfaldlega eins og soðin epli með kanil alveg dásamleg. Þið verðið allaveganna ekki svikin á því að prófa þessa!

vatnsdeigsbolla
vatnsdeigsbolla

Vatnsdeigsbollur – u.þ.b. 15 bollur –

250 ml vatn
125 g smjör
125 g hveiti
4 eggd

Stillið ofn á 180°c. Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjörinu að bráðna. Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til deigið er orðið einn massi.. Kælið deigið örlítið. Bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið deigið í sprautupoka og sprautið bollur á smjörpappírsklædda plötu, eða notið tvær teskeiðar til setja deigið á plötuna. Bakið í 18-20 mínútur.  Ef þið viljið hafa bollurnar stærri þá er tíminn aukinn í samræmi við það.

Kröns

50 g smjör
50 g hveiti
50 sykur
½ tsk kanill

Stillið ofnin á 180°c. Blandið öllum hráefnum saman í skál og hnoðið saman með höndunum þangað til að allt er samlagað. Dreifið á bökunarpappírsklædda ofnpötu og bakið inn í ofni í u.þ.b. 10 mín. Myljið niður í litlar einingar og part í mylsnu.

Karamellusósa

200 g sykur
90 g smjör
120 g rjómi
1 tsk salt, eða eftir smekk

Setjið sykurinn í pott og stillið á miðlungshita. Leyfið sykrinum að bráðna. Ég reyni að hræra sem minnst í sykrinum til að karamellan kristallist síður. Þegar sykurinn er bráðnaður, takið pottinn af hitanum og bætið smjörinu saman við og hrærið á meðan. Þegar smjörið og sykurinn hafa blandast saman hellið rjómanum í mjórri bunu saman við. Ef hráefnin eru köld þarf mögulega að setja pottinn aftur á helluna og leyfa karamellunni að sjóða í smá stund í viðbót eða þangað til allt er vel samblandað. Bætið teskeið af salti saman við í lokin.

Samsetning

Epla og kanil sulta frá St. Dalfour
500 ml rjómi, þeyttur
Karamellusósa
Kröns

Skerið bollurnar í tvennt og setið matskeið af sultu í botninn á hverri bollu, gott er að setja rjómann í sprautupoka og sprauta hring á hverja bollu, dreifið smávegis af karamellusósu yfir rjómann og lokið síðan bollunum. Dreifið karamellusósu yfir lokið og bætið krönsinu ofan á karamellusósuna á hverri bollu.

Njótið!

– Ert þú að fylgjast með á Instagram @dodlurogsmjor? –

You Might Also Like