Bakstur

Súkkulaði Baileys bollur

February 13, 2023
súkkulaði bolla

Samstarf // Nói Síríus

Stundum má gera eitthvað sem er bara fullorðins og þessar bollur eru það svo sannarlega. Dökkt súkkulaði og baileys – Fullkomin blanda. Svo er hægt að nostra við og rista smá möndlur til að toppa bollurnar algjörlega. Hvað segið þið með þessar?

Vatnsdeigsbollur

250 ml vatn
125 g smjör
125 g hveiti
4 egg

Stillið ofn á 180°c. Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjörinu að bráðna. Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til deigið er orðið einn massi, kælið deigið örlítið. Setjið deigið í hrærivélarskál og bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið deigið þá í sprautupoka og sprautið bollur á smjörpappírsklædda plötu, eða notið tvær teskeiðar til setja deigið á plötuna. Bakið í 18-20 mínútur.  Ef þið viljið hafa bollurnar stærri þá er tíminn aukinn í samræmi við það.

Sykurristaðar möndlur (má sleppa)

50 g möndlur
2 msk sykur
1 msk vatn

Setjið á pönnu á miðlungshita og leyfið að sykrinum að bráðna og hjúpa sig utan um möndlurnar, tekur u.þ.b 10 mín.

Súkkulaði fylling

200 g Síríus Barón súkkulaði 56% með núggatín möndlum og sjávarsalti
100 ml Baileys líkjör
100 ml rjómi
200 ml rjómi, þeyttur

1-2 bananar

Brjótið súkkulaðið í bita og setjið í skál ásamt Baileys og 100 ml af rjóma. Bræðið í örbylgju eða yfir vatnsbaði. Takið u.þ.b. 100 ml frá og setjið í aðra skál.

Þeytið þá rjóma og blandið varlega saman við súkkulaðiblönduna, setjið inn í ísskáp og kælið í 5-10 mín.

Skerið bollurnar í tvennt og dýfið efri partinum ofan í súkkulaðið sem þið settuð í skál til hliðar. Saxið síðan niður nokkrar möndlur og dreifið yfir súkkulaðið.

Takið súkkulaðifyllinguna úr kæli og setjið í sprautupoka eða notið tvær skeiðar. Skerið bananann í sneiðar og dreifið yfir bollu botnana og sprautið síðan súkkulaðifyllingu yfir banana. Lokið bollunum og berið fram.

Njótið!

– Ertu að fylgjast með á Instagram Döðlur & smjör ? –

You Might Also Like